30. maí -14. júní 2026

1. desember 2025

Björk og James Merry taka yfir Listasafn Íslands

Það er með mikilli eftirvæntingu að Listasafn Íslands og Listahátíð í Reykjavík tilkynna að á opnunardegi Listahátíðar, þann 30.maí 2026, opna sýningar Bjarkar Guðmundsdóttur og James Merry í Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg. 

Ummyndlingar (Metamorphlings) og echolalia taka yfir alla fjóra sali safnsins og eru sýningarnar framlag Listasafn Íslands til hátíðarinnar í vor. 

Sýningarnar munu standa allt sumarið og fram yfir almyrkva á sólu ársins 2026.

James Merry : Ummyndlingar (eng. Metamorphlings
James Merry er breskur listamaður búsettur á Íslandi. Hann notar margs konar leiðir og miðla í sköpun sinni og hefur um langt skeið átt í gjöfulu samstarfi við Björk. Ummyndlingar (Metamorphlings) í Listasafni Íslands er fyrsta yfirlitssýning listamannsins. 

Á sýningu James verða til sýnis um 80 grímur sem hann hefur skapað undanfarin 10 ár, þar sem keltnesk menning, náttúra og fornir helgisiðir veita innblástur. Grímurnar bera vitni um einstakt handbragð þar sem blandað er saman hefðbundnum aðferðum og öðrum nýstárlegri; útsaumur, málmsmíði, þrívíddarprentun, silfursmíði og gagnvirkni. Úr verður sveigur síkvikra sköpunarverka er veita okkur djúpstæða innsýn í óbilandi hrifningu James á lífríkinu, sem og áhuga hans á fornleifafræði og fornum helgisiðum. Í brennipunkti sýningarinnar er augnablikið þegar hamskiptin verða – þegar formið og sjálfið flæða saman. Margar af grímunum á sýningunni skapaði listamaðurinn fyrir Björk Guðmundsdóttur en á sýningunni verða einnig verk sem unnin hafa verið fyrir aðra listamenn eins og Tildu Swinton og Iris van Herpen. 

Björk : echolalia (Ancestress, Sorrowful Soil og nýtt verk frumsýnt) 
Á hálfrar aldar ferli hefur Björk Guðmundsdóttir verið óþreytandi við að þenja hefðbundin mörk tónlistarformsins og í stöðugum tilraunum sínum ofið saman sjónrænum þáttum, náttúru og tækni. 

Á sýningunni echolalia í Listasafni Íslands verður kastljósinu beint að óþrjótandi sköpunarkrafti Bjarkar við smíð verka sem sameina krafta listafólks úr ólíkum áttum; tónlist, myndlist, kvikmyndagerð, hönnun, dansi og hljóðtækni. Þrjár innsetningar veita gestum einstakt tækifæri til að upplifa alltumlykjandi verk sem búa yfir kyngimagnaðri sjónrænni, hljóðrænni og tilfinningalegri dýpt. 

Í fyrsta salnum verður ný innsetning með tónlist sem sprettur upp úr væntanlegri plötu Bjarkar. Þannig býðst gestum að kynnast næsta kafla í rannsóknum listakonunnar þar sem umbreytingar og samvinna liggja til grundvallar. 

Tvær tregablandnar innsetningar verkanna Ancestress og Sorrowful Soil leggja svo undir sig sitthvorn salinn. Verkin eru bæði tileinkuð minningu móður Bjarkar, náttúruverndarsinnanum og baráttukonunni Hildi Rúnu Hauksdóttur sem lést árið 2018. Lögin eru samin og útsett af Björk og komu út á plötunni Fossora árið 2022. Hér birtast þau með nýjum og stórbrotnum hætti. 

Í Ancestress er tekist á við hringrás lífsins. Þetta tregaljóð er sviðsett í afskekktum dal á Íslandi og birtist okkur sem eins konar helgiganga tónlistarfólks og dansara, þar á meðal Bjarkar sjálfrar, auk þess sem Sindri Eldon sonur hennar syngur með. Verkið er samið og útsett af Björk fyrir strengjasveit og slagverk. Myndbandið varð til í náinni samvinnu við samstarfsfólk Bjarkar til margra ára, þ.m.t. kvikmyndagerðarmanninn Andrew Thomas Huang og James Merry, sem ásamt Björk er listrænn stjórnandi verksins og hannar einnig grímurnar og munina sem prýða tónlistarfólkið. 

Hið pólýfóníska þriggja-kóra-verk Sorrowful Soil er sálumessa um móðurmissi sem lífsafl, samin og útsett af Björk fyrir níu radda kór. Egglaga vídeóverk í leikstjórn Viðars Loga og listrænni stjórn Bjarkar, kallast á við hvort tveggja mennskan og jarðfræðilegan tíma. Myndbandið var tekið upp við eldsumbrotin í Fagradalsfjalli. Þrjátíu hátölurum er raðað upp í salinn og úr hverjum og einum berst stök rödd úr Hamrahlíðarkórnum undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Þegar gengið er um salinn geta gestir því upplifað einstaka raddir og samhljóm í senn, og þannig vakna hughrif um mennsku sem er í senn einstaklingsbundin og sameiginleg. 

Myndaalbúm