
16. júlí 2026
30. maí -14. júní 2026
9. maí 2016
Sýning á teikningum og skúlptúrum hinnar belgísku Berlinde De Bruyckere verður opnuð í sal 1 í Listasafni Íslands 21. maí klukkan 15. Ferill Berlinde spannar um 30 ár en hún hlaut alþjóðlega hylli í kjölfar Feneyjatvíæringsins árið 2003, þar sem verk hennar vorur til sýnis í ítalska skálanum. Hinar kraftmiklu og afmynduðu fígúrúr Berlinde, mennskar eða af hrossakyni, úr feldi dýra, vaxi eða hári, láta engan ósnortinn. Halldór Björn Runólfsson, safnstjóri Listasafns Íslands, telur mikinn feng af komu Bruyckere hingað til lands. „Það er Listasafni Íslands mikill heiður og happ að fá hingað sýningu á verkum jafnstórbrotins listamanns og Berlinde De Bruyckere, sem er meðal athyglisverðustu listamanna samtímans. Listahátíð í Reykjavík hefur unnið einarðlega að því að tryggja Íslendingum innsýn í það besta sem gerist á alþjóðlegum vettvangi samtímalistar. Með samstilltu átaki beggja aðila opnar Listahátíð 2016 með enn einu glæsiatriðinu í salarkynnum Listasafnsins og sannar með því óskoraða stöðu þessa elsta og virtasta viðburðaglugga á sviði lista í íslensku menningarlífi. Eitt af verkum Berlinde De Bruyckere á opnunarsýningu Listahátíðar í Reykjavík í Listasafni Íslands hefur aldrei verið sýnt áður. Það er frá 2002, um það leyti sem listakonan sló í gegn alþjóðlega á Tvíæringnum í Feneyjum og dró að sér athygli fjöldans sem sótti heim þessa elstu myndlistarhátíð veraldar.“ Fleiri myndlistarsýningar verða opnaðar í miðbæ Reykjavíkur sama dag. Klukkan 16:00 verður sýning Gabríelu Friðriksdóttur, Innra líf heysátu, opnuð í Gallery GAMMA. Gabríela birtir okkur þar innra líf heysátunnar með teikningum, skúlptúrum og lifandi teiknimynd. Í Ljósmyndasafni Reykjavíkur opnar einnig klukkan 16:00 sýningin Hverfandi menning – Djúpið, með ljósmyndum Þorvaldar Arnar Kristmundssonar sem veita ómetanlega innsýn í hverfandi menningu og samfélag bænda í Ísafjarðardjúpi. Klukkan 17:00 verða samtímis opnaðar sýningar Steinunnar Þórarinsdóttur, Mósaík, í Tveimur hröfnum listhúsi og sýning þeirra Hreins Friðfinnssonar og John Zurier, Við vorum einu sinni nágrannar, í Listasafni ASÍ. Þekktar fígurur Steinunnar eru kynlaus tákn mennskunnar en sýningin hennar er nokkurs konar hugleiðing um hinar síbreytilegu víddir mannsins. Klukkan 17:15 fremur Anna Richardsdóttir hreingjörning á verki Steinunnar sem stendur fyrir framan galleríið. Ljóðræna skynjunar, staðar, tíma og endurminninga skapa sameiginlegan, tilfinningalegan þráð milli umbreyttra fundinna hluta og innsetninga Hreins Friðfinnssonar og abstraktmálverka John Zurier. Klukkan 18:00 kemur svo að opnun sýningar á málverkum Huldu Stefánsdóttur í Berg Contemporary. Sýningin Færsla fjallar um það hversu ómögulegt er að fanga augnablikið án þess að það beri með sér bergmál af eða ummerki um hið liðna – hvernig hér og nú er alltaf líka minning þess sem var. Föstudaginn 27. maí klukkan 20:00 verður sýning Söru Björnsdóttur opnuð í Gerðarsafni í Kópavogi. Sýningin ber nafnið Flâneur og er eins konar sjálfsævisögulegt ferðalag sem fjallar um leyndardómsfullt ástand listakonunnar, þar sem hún dvelur í stórborginni Lundúnum og sækir sér langþráðan vinnufrið. Textaverk hennar og klippimyndir mynda sögur, augnablik, hugarvíl og uppreisn. Í Lækningaminjasafninu á Seltjarnarnesi sýnir fatahönnuðurinn Hildur Yeoman á sér nýja hlið. Sýningin Transcendence er innsetning þar sem hún teflir saman hönnun, ljósmyndun og myndlist. Áhorfandanum er boðið að ganga inn í óræðan heim þar sem ólíkar listgreinar mætast. Á opnun sýningarinnar 3. júní klukkan 20, verður lifandi tónlist og gjörningar tengdir verkum Hildar. Hljómalindarreitnum verður umbreytt til tveggja ára með verkefninu Húsgafl og port. 5. júní klukkan 20 verða þar afhjúpuð tvö ný útiverk þeirra Þórdísar Erlu Zoëga og Arnórs Kára Egilssonar. Áætlað er að verk þeirra fái að standa fram til næstu Listahátíðar í Reykjavík árið 2018.
Norræna húsið tekur einnig þátt í Listahátíð með því að bjóða uppá fjölbreytta viðburði í tengslum við sýninguna The Weather Diaries sem nú stendur þar yfir. Sýningin er unnin af tvíeykinu Cooper & Gorfer í nánu samstarfi við hönnuði frá Íslandi, Grænlandi og Færeyjum. Haldin verður prjónasmiðja undir handleiðslu Steinunnar Siguðardóttur þann 22. maí og ritsmiðja fyrir börn með Gerði Kristnýju rithöfundi 28. og 29. maí. 2. júní verður hönnunarspjall með grænlenska fatahönnuðinum Bibi Chemnitz og Guðrúnu Rógvadóttur frá færeyska tískumerkinu Guðrun & Guðrun og sama dag verður listamannaspjall með Hrafnhildi Arnardóttur og Jóhönnu Methúsalemsdóttur, stofnanda Kríu Jewelry. 5. júní fremja þær Kristín Anna Valtýsdóttir og Shoplifter tónlistargjörning. Þá mun innsetning eftir Guðmund Jörundsson (JÖR) prýða anddyri Norræna hússins á meðan á hátíðinni stendur. Listahátíð í Reykjavík stendur hefst 21. maí og lýkur 5. júní. Tónlistar- og sviðslistahluti dagskrárinnar hefur þegar verið kynntur. Upplýsingar um alla viðburði hátíðarinnar aðgengilegar á vefsíðu hátíðarinnar, www.listahatid.is. Allar frekari upplýsingar veitir Hólmfríður Helga Sigurðardóttir, kynningarstjóri Listahátíðar í Reykjavík, í síma 821 4241 og í gegnum tölvupóst: holmfridur@artfest.is