30. maí -14. júní 2026

25. mars 2026

Brim verður bakhjarl Listahátíðar í Reykjavík

Brim og Listahátíð í Reykjavík hafa skrifað undir samning þess efnis að Brim verði bakhjarl Listahátíðar til ársins 2028.

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, og Lára Sóley Jóhannsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar, skrifuðu undir samkomulagið fyrr í dag.

„Það er mikið fagnaðarefni að Brim verði bakhjarl Listahátíðar. Samstarfið veitir hátíðinni mikilvægt svigrúm þegar kemur að dagskrárgerð og framboði viðburða án endurgjalds. Á Listahátíð í ár koma fram hátt í 1300 flytjendur á öllum aldri, víða að úr heiminum, úr öllum hverfum borgarinnar og landshlutum. Það er afar dýrmætt að finna fyrir áhuga og vilja Brims til þess að vera virkur þátttakandi í að efla Listahátíð og þau áhrif sem hátíðin hefur,“ segir Lára Sóley.

„Við í Brimi viljum vera virkir og öflugir þátttakendur í samfélaginu. Það gerum við með því sinna vel okkar störfum, skapa verðmæti og auka þannig framlag okkar. Við kjósum einnig að styðja margt þess utan sem horfir til framfara. Listahátíð í Reykjavík gefur okkar listafólki tækifæri til að spreyta sig á meðal þeirra bestu og almenningur hér heima nær að skynja ferska vinda í heimi lista. Við í Brimi trúum því að þannig verði framfarir og þannig eflist okkar samfélag. Við róum öll í sömu átt,“ segir Guðmundur Kristjánsson.

Listahátíð í Reykjavík 2026 fer fram dagana 30. maí til 14. júní. Viðburðir verða víða í borginni og á ýmsum stöðum í landsbyggðunum. Heildardagskrá hátíðarinnar verður kynnt næstkomandi föstudag, 27. mars. Meðal þess sem má finna á dagskrá hátíðarinnar er fjórir viðburðir tengdir Hildi Guðnadóttur sem jafnframt er hátíðarlistamaður, áttunda sinfónía Mahlers í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sýning úkraínska listahópsins Open Group í Nýlistasafninu, leiksýning rúönsku kvennatrommusveitarinnar Ingoma Nshya og stórtónleikar John Grant í Hörpu.