Zimoun
Svissneski listamaðurinn Zimoun býr til hljóðinnsetningar og skúlptúra úr endurunnu efni sem fellur til í daglegu lífi og iðnaði.
Þessi magnþrungna, dáleiðandi innsetning hefur sterk tengsl við náttúruna en snertir þó einnig á samfélagslegri gagnrýni, vélrænum ferlum, valdakerfum heimsins og ört vaxandi vélmennavæðingu.
Zimoun nýtir sér staðbundinn efnivið sem hann virkjar með handgerðum, vélrænum ferlum. Krafs, klór, bank og titringur umbreytir sýningarsalnum í Listasafninu í lifandi og ómandi umhverfi.
Zimoun hefur haldið fjölda sýninga og viðburða um heim allan, m.a. í Kóreu, Bandaríkjunum, Frakklandi, Kína og Bretlandi, og hafa verk hans ávallt vakið verðskuldaða athygli.
Aðgengi
Aðgengi að Listasafninu á Akureyri er almennt gott. uðvelt er að komast inn og um hús og lyftuaðgengi er á milli hæða. Tvö aðgengileg salerni eru í húsinu. Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er við aðalinngang hússins
Á 4. hæð safnsins er næðisrými
Á safninu eru kynlaus salerni.
