30. maí -14. júní 2026

Zimoun - nánara aðgengi

Einstakar innsetningar eftir svissneska listamanninn Zimoun á Listasafni Akureyrar

Aðgengislýsing

Wheelchair

Sýningin fer fram á Listasafninu á Akureyri. Aðgengi innandyra er almennt gott. Lyftur í anddyri ganga að öllum sölum safnsins.

Aðgengileg saleri eru vinstra megin við afgreiðslu safnsins á 1. hæð og til hægri þegar komið er út úr lyftu á 3. hæð. 

Hægt er að fá lánaðan hjólastól í móttöku.

Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða vinstra megin við aðalinngang safnsins.

Headphones

Á 4. hæð safnsins er næðisrými, afmarkað en þó aðgengilegt öllum

Börn og örorkulífeyristakar fá frítt inn á safnið. Ekki þarf að greiða inn á safnið fyrir aðstoðarfólk og nóg er að tilkynna starfsfólki mótttöku um það við kaup á aðgangsmiða.
Á 1. hæð er kaffihúsið Ketilkaffi sem opið er alla daga frá 8 – 17.

Ekki má fara með bakpoka inn í sal en skápar til að geyma muni eru við móttöku á 1. hæð.

Á safninu eru kynlaus salerni.

Afþreyingarsvæði fyrir börn er á 3. hæð, í sal 07, og skiptiborð er á salerni á 1. og 3. hæð.