viibra: Venutian Wetland
Venutian Wetland er sviðsett tónverk þar sem hreyfingar og tónar renna saman í eitt. Flautuseptettinn viibra birtist sem sjálfskipuð heild samlifandi lífvera, laus við mannlega skynjun og bundin sífelldri umbreytingu í framandi umhverfi handan marka hins jarðneska raunveruleika.
Lífverurnar eiga sér brothætta samvist þar sem mörk einstaklings og heildar leysast upp, og aðlögun er ekki val heldur nauðsyn. Ósýnileg efnasamskipti flæða á milli þeirra, seig og óstöðvandi, og drífa áfram umbreytingu á formi, virkni og tilvist. Þannig þróast hljóðheimur sem minnir fremur á lifandi vistkerfi en samveru lífvera. viibra var stofnaður árið 2016 í tengslum við plötu Bjarkar, Utopia.
Hópurinn er hvað þekktastur fyrir þátttöku sína í hinu margrómaða tónlistarverki Bjarkar, Cornucopia, sem sýnt var um heim allan á árunum 2018 til 2023.
viibra kannar margslunginn hljóðheim flautunnar en meðlimir hópsins eru allar virkir þátttakendur í íslenskri tónlistarsenu, ekki einungis sem flytjendur heldur einnig sem tónskáld og kennarar sem nálgast tónlistarsköpun með fjölbreyttum og nýstárlegum aðferðum. Fyrsta plata viibru kom út árið 2024.
Venutian Wetland er styrkt af Starfslaunum Listamanna, Tónlistarsjóði og Borgarsjóði.
Aðgengi
Aðgengi í Norðurljósum er almennt gott. Auðvelt er að komast inn og um hús og lyftuaðgengi er á milli hæða. Sérmerkt hjólastólastæði eru í Norðurljósum. Aðgengileg salerni eru á öllum hæðum Hörpu. 19 sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru í bílakjallara Hörpu og 2 stæði sjávarmegin við húsið sjálft.
Tónmöskvi er í Norðurljósum.
Kynlaus salerni eru við efri bílakjallara og á gangi á 2. hæð. Aðgengileg salerni eru líka kynlaus og eru þau á öllu hæðum Hörpu.
