Veggjamálun: námskeið fyrir 16 - 20 ára
Langar þig að mála stórt og sjá list þína lifna við á vegg?
Skapandi námskeið þar sem þátttakendur kynnast tækni, hugmyndavinnu og framkvæmd veggjamálunar. Allt frá skissugerð yfir í að prófa sig áfram og skapa verk sem setur svip á umhverfið.
Námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem vilja þróa færni sína frekar.
Skráning á: klubbur@artfest.is
- júní 12:00 - 16:00 - Sunnusalur, Iðnó
- júní 12:00 - 16:00 - Sunnusalur, Iðnó
- júní 12:00 - 16:00 - Úti
- júní 12:00 - 16:00 - Úti
Aðgengi
Rampur liggur að útidyrahurð. Hurð opnast ekki sjálfkrafa. Um 5 cm. þröskuldur er inn í hús með hallandi lista þegar farið er inn í hús. Engin listi er við þröskuld út úr húsi. Auðvelt er að komast um innanhúss, lyftuaðgengi er á milli 1. og 2. hæðar og listar eru við alla þröskulda sem opnir eru almenning. Aðgengilegt salerni er á 1. hæð en það er þó í minna lagi. Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er í Tjarnargötu við Tjarnarskóla.
Sérstakt næðisrými er á 2. hæð.
Öll salerni eru kynlaus.
