30. maí -14. júní 2026

Sköpunarmiðstöðin Yfirlitssýning

1. - 14. JÚN
17:00
REYKJASTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK

Á yfirlitssýningu Sköpunarmiðstöðvarinnar verða sýnd verk eftir listafólk sem tengst hefur miðstöðinni og dvalið þar í vinnustofu en miðstöðin hlaut Eyrarrósina árið 2025. Sköpunarmiðstöðin var stofnuð árið 2011 og hefur þróast sem menningarmiðstöð og alþjóðleg vinnustofudvöl sem styður við listræna sköpun, miðlun og tilraunastarfsemi á Austurlandi.

Sýning þessi varpar ljósi á rúman áratug af skapandi starfsemi miðstöðvarinnar sem einkennist af fjölbreyttum listformum, vinnuaðferðum og list rænu samstarfi.

Sýningarstjóri: Lukasz Stencel
Joel Crosswell, Alfredo Esparza Cardenas Gillian Pokalo, Arista Wilson, Lavinia Hanachiuc Hardy Langer, Eva Spierenburg, Alba Suau, Grace Fechner, Ruby Bateman, Helena Barnes, Zdenek Patak, Sofia Fresia, Frank Webster, Marc Alexander Fulchini, Una Björk Sigurðardóttir

Opnun: 1. júní kl. 17:00
Opnunartími: Daglega 12:00–17:00

0

Aðgengi

Sýningin fer fram í ófrágengnu verslunarrými í húsi Landsbankans á horni Reykjastrætis og Tryggvagötu. Lágur rampur liggur inn í rýmið. Gólfið er gróft steinsteypugólf. Tvö rúmgóð salerni eru í rýminu en þau eru ekki með stuðningsslár. Aðgengileg salerni eru á Hafnartorgi, á móti rýminu. Fimm sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru í bílastæðahúsinu í Reykjastræto. Einnig eru tvö stæði í Pósthússtræti.

Strætóleiðir á viðburð
LEIÐ 1
LEIÐ 2
LEIÐ 3
LEIÐ 6
LEIÐ 11
LEIÐ 12
LEIÐ 13
LEIÐ 14