Sköpunarmiðstöðin - nánara aðgengi
Aðgengislýsing
Sýningin fer fram í ófrágengnu verslunarrými í húsi Landsbankans á horni Reykjastrætis og Tryggvagötu. Gengið er inn Reykjastrætismegin, á móti búð North Face. Lágur rampur liggur inn í rýmið. Gólfið er gróft steypugólf og í einum enda rýmisins er um 2 cm. hækkun. Upp við glugga rýmisins liggur um 20 cm. breiður og 10 cm. djúpur opinn stokkur.
Í rýminu eru tvö salerni en um 2 cm. þrep er inn á salernisrýmið. Salernin eru rúmgóð og með vaski en ekki með stuðningsslár né með nægu snúningsrými fyrir stærri hjólastóla. Gestir geta notað aðgengilegt salerni í Hafnartorgi mathöll. Farið er inn um sjálfvirka rennihurð á móti sýningarrýminu. Salerni er á hægri hönd þegar komið er fram hjá rúllustigum.
Í bílakjallara á Reykjastræti eru fimm sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða, þar af tvö við inngang inn í Hafnartorg mathöll. Hnappur er til að opna hurð og lyfta gengur á milli hæða. Þaðan er hægt að fara yfir Reykjastrætið og inn í sýningarrýmið. Bílastæðin eru gjaldskyld. Einnig eru tvö sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða við Pósthússtræti 15 og 16.
Aðgangur á sýninguna er ókeypis.
Öll salerni í rýminu eru kynlaus.
