30. maí -14. júní 2026

Loftvægi

30. MAÍ
14:44
HÖRPUTORG

Í tilefni af opnun Listahátíðar 2026, hefur Samúel Jón Samúelsson samið nýtt tónverk sem nefnist Loftvægi fyrir allar fjórar skólahljómsveitir Reykjavíkurborgar. Loftvægi er gamalt hugtak yfir loftþrýsting sem vísar í jafnt vægi allra sem blása í verkinu.

Verkið verður frum flutt af hátt í 600 ungmennum sem leika í hljómsveit unum á málm­ og tréblásturshljóðfæri auk slagverkshljóðfæra. Hljóm­sveitirnar koma leikandi hver úr sinni áttinni en sameinast og tengjast að lokum í einstakri tónlistarupplifun á Hörpu­torgi og nær þá upphaf Listahátíðar hápunkti.

Skólahljómsveitir Reykjavíkurborgar sinna afar mikil­vægu tónlistarstarfi sem litað hefur líf borgarbúa ára­tugum saman og jafnað tækifæri ungmenna til þess að stunda tónlistarnám.

Skólahljómsveitir Vesturbæjar og Austurbæjar hafa starfað frá árinu 1954, Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts frá árinu 1968 og Skólahljómsveit Grafarvogs hóf starfsemi 1992. Samúel er básúnuleikari og tónskáld og hefur leikið með óteljandi hljómsveitum og tónlistarfólki, samið mikið af tónlist og útsett. Hann lauk meistaranámi í tónsmíðum við Lista háskóla Íslands árið 2023. Samúel hefur fengist við tónlistar kennslu og stjórnað skóla hljómsveitum Reykjavíkur. Hann hefur því góða innsýn inn í starfsemi sveitanna.

Að listrænni útfærslu, auk Samúels og Láru Sóleyjar Jóhannsdóttur, listræns stjórnanda Listahátíðar, kemur Valgerður Rúnarsdóttir, danshöfundur.

Tónskáld & listræn stjórnun: Samúel Jón Samúelsson
Hljómsveitarstjórnendur: Snorri Heimisson, Skólahljómsveit Austurbæjar Ingi Garðar Erlendsson, Skólahljómsveit Vestur- og Miðbæjar Øyvind Lapin Larsen, Skólahljómsveit Grafarvogs Anna Sigurbjörnsdóttir, Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts
Aðrir listrænir stjórnendur Lára Sóley Jóhannsdóttir Valgerður Rúnarsdóttir
0

Aðgengi

Viðburðurinn fer fram á Hörputorgi, svæðið er malbikað. Viðburðurinn er 30 mínútur að lengd og gert er ráð fyrir að gestir standi. Hægt er að fá sér sæti í áhorfendatröppum við Landsbankahúsið og á bekkjum á svæðinu. Aðgengileg salerni eru í Hörpu. 19 sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru í bílakjallara Hörpu og 2 stæði sjávarmegin við húsið sjálft.

Strætóleiðir á viðburð
LEIÐ 1
LEIÐ 2
LEIÐ 3
LEIÐ 6
LEIÐ 11
LEIÐ 12
LEIÐ 13
LEIÐ 14