Loftvægi - nánara aðgengi
Aðgengislýsing
Viðburðurinn fer fram á Hörputorgi, á milli Hörpunnar og Landsbankans, og er 30 mínútur að lengd. Svæðið er malbikað. Gert er ráð fyrir að gestir standi á meðan viðburðurinn fer fram en hægt er að fá sér sæti í áhorfendatröppum við Landsbankahúsið og á bekkjum á svæðinu.
Aðgengileg salerni eru í Hörpu á K1, efri hæð í bílakjallara.
19 sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru í bílakjallara Hörpu og 2 stæði sjávarmegin við húsið sjálft. Til að geta lagt gjaldfrjálst í stæðin í bílakjallara þarf að senda póst á bilahus@greenparking.is með a.m.k. 3 tíma fyrirvara með nafni, kennitölu handhafa P-merkis, bílnúmeri, tímasetningu og ljósmynd af P-merki.
Aðgangur að viðburðinum er ókeypis.
Viðburðurinn fer fram utandyra og inniheldur hljómmikinn lúðrablástur.
