30. maí -14. júní 2026

Sjónarhorn

1. - 14. JÚN
17:00
REYKJASTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK

Sjónarhorn er samsýning fimm listamanna sem allir vinna með ljósmyndir. Hér birtast myndir eftir þau Einar Fal Ingólfsson, Elvar Örn Egilsson, Jóa Kjartans, Maríu Kjartans og Snædísi Malmquist.

Ljósmyndir móta sýn okkar á heiminn og Ísland er þar engin undantekning. Á síðustu árum hefur ímynd landsins á erlendri grundu einkennst af áherslum ferðamennskunnar, en þar er ekki öll sagan sögð.

Sjónarhorn beinir athyglinni frá hinu hefðbundna og að öðrum hliðum; látlausum augnablikum úr daglegu lífi, vonskuveðri og skiltum mótmælenda. Listamennirnir nálgast viðfangsefnið Ísland hver á sinn hátt og draga fram margslungnari, flóknari, undarlegri en jafnframt fegurri mynd.

Einar Falur Ingólfsson Elvar Örn Egilsson Jói Kjartans María Kjartans Snædís Malmquist
Samstarfsaðilar: Icelandair Hvíta húsið

Opnun 1. júní kl. 17:00
Opnunartími: Daglega 12:00–17:00

0

Aðgengi

Sýningin fer fram í ófrágengnu verslunarrými í húsi Landsbankans á horni Reykjastrætis og Tryggvagötu. Lágur rampur liggur inn í rýmið. Gólfið er gróft steinsteypugólf. Tvö rúmgóð salerni eru í rýminu en þau eru ekki með stuðningsslár. Aðgengileg salerni eru á Hafnartorgi, á móti rýminu. Fimm sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru í bílastæðahúsinu í Reykjastræto. Einnig eru tvö stæði í Pósthússtræti.

Strætóleiðir á viðburð
LEIÐ 1
LEIÐ 2
LEIÐ 3
LEIÐ 6
LEIÐ 11
LEIÐ 12
LEIÐ 13
LEIÐ 14