Þar sem við mætumst
Íslenski dansflokkurinn tekur yfir Litla svið Borgarleikhússins með Þar sem við mætumst, samsköpunarverki dansara flokksins. Í líkama dansarans býr uppsöfnuð reynsla, minni og þekking sem mótast hefur í gegnum ótal sköpunarferli.
Í verkinu fá dansararnir rými til sjálfstæðrar sköpunar, þar sem þau leiða ferlið sjálf og ögra hefðbundnum valdastrúktúr með því að stíga samtímis inn í hlutverk dansara og danshöfundar. Áhorfendum er boðið upp á kvöldstund þar sem ólíkar raddir mætast í sameiginlegri hugleiðingu um kraftinn sem felst í hlustun og samhljómi.
Aðgengi
Aðgengi að Litla sviði Borgarleikhússins er almennt gott. Betra aðgengi er inn um útidyrahurð sem snýr að Verzlunarskólanum en hurðaopnari er við þá útidyrahurð. Auðvelt er að komast um húsið. Tvö hjólastólastæði eru í öftustu röð í salnum. Aðgengilegt salerni er í húsinu. Þrjú sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við húsið.
Tónmöskvi er í salnum.
Skynnæmir: Hægt er að fá lánaða peltora (hljóðeinangrandi heyrnatól).