30. maí -14. júní 2026

Þar sem við mætumst - nánara aðgengi

Nýtt dansverk eftir dansara Íslenska dansflokksins á Litla sviði Borgarleikhússins

Aðgengislýsing

Wheelchair

Sýningin fer fram á Litla sviði Borgarleikhússins. Aðgengi í Borgarleikhúsinu er almennt gott. Hurðaopnari er hægra megin við útidyrahurð á móti Verzlunarskólanum en engin hurðaopnari er við hurðina sem snýr að Kringlunni. Um 1 cm. brún er við báðar hurðar. Hægt er að fara um húsið sjálf án þess að fara um þrep eða tröppur. Gólf í andyri er að hluta til með teppi með snöggum hárum og að hluta til flísalagt. Rampur er frá anddyri og inn á áhorfendasvæði á Litla sviði.

Sérmerkt stæði eru fyrir hjólastóla í staðnum, þau eru staðsett í öftustu röð á neðri hæð salar. Hægt er að bóka þau á í sérbókun á netinu eða með því að hafa samband við miðasölu í síma 568-8000.

Aðgengilegt salerni er í hinum enda hússins, við Nýja sviðið.

Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er beint fyrir framan aðalinngang á móti Verzlunarskólanum. Tvö bílastæði eru við húsið á bílastæði sem snýr að Kringlunni.

Hearing loop

Tónmöskvi er í salnum. Hafið samband við starfsfólk í forsal til þess að fá sendi sem gestir setja um hálsinn. Tónmöskvinn virkar með heyratækjum sem hægt er að setja á t-stillingu.

Headphones

Hægt er að fá lánaða peltora (hljóðeinangrandi heyrnatól) hjá starfsfólki í forsal.

Kynlaus salerni eru hægra megin í húsinu, við Nýja sviðið.

Veitingarsala er á staðnum.