Hlustunarherbergi Garg
Garg er bókabúð og samfélagsrými sem færir jaðarinn inn á miðjuna og ljær röddum rými til að hafa hátt.
Ykkur er boðið inn í Hlustunarrými Garg þar sem ykkur býðst að setjast í hring og mynda þannig heild sem les textabrot saman og upphátt. Að þessu sinni lesum við textann The Carrier Bag Theory of Fiction eftir rithöfundinn Ursula K. Le Guin. Eftir lesturinn fara fram umræður um textann, fyrst í litlum hópum og svo ræðir allur hópurinn saman. Komum saman, hlustum, notum röddina okkar og tengjumst.
Viðburðurinn fer fram á ensku.
Enginn undirbúningur nauðsynlegur.
20 pláss í boði, bókanir í tölvupósti á klubbur@artfest.is
3 klst. með hlé
Aðgengi
Rampur liggur að útidyrahurð. Hurð opnast ekki sjálfkrafa. Um 5 cm. þröskuldur er inn í hús með hallandi lista þegar farið er inn í hús. Engin listi er við þröskuld út úr húsi. Auðvelt er að komast um innanhúss, lyftuaðgengi er á milli 1. og 2. hæðar og listar eru við alla þröskulda sem opnir eru almenning. Aðgengilegt salerni er á 1. hæð en það er þó í minna lagi. Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er í Tjarnargötu við Tjarnarskóla.
Sérstakt næðisrými er á 2. hæð.
