30. maí -14. júní 2026

Gríma: á slóðum frásagnarlistar

12. JÚN
18:00
IÐNÓ

Söguhringur Frásagnafélag ásamt grímudansaranum Ivalu Skifte-Labansen opnar dyrnar að dulúðlegum heimi frásagnarlistar.

Flytjendur bjóða áhorfendum á vit ævintýranna með leiddri hugleiðslu og tónlistarflutningi. Samkvæmt grænlenskri hefð fléttast líf, ást og dauði saman í sögum sem hrífa áhorfandann með sér í ferðalag á Norðurslóðum.

Sýningin er leikur og lifandi samtal menningarheima sem endar í kraftmiklum grænlenskum grímudansi þar sem hið forna talar beint inn í samtímann.

Söguhringur Frásagnafélag (IS): Hannah Rós Sigurðardóttir Tobin og Maó Alheimsdóttir ásamt grímudansaranum Ivalu Skifte-Labansen (GL). Söguhringur eru félagasamtök sem rækta munnlega frásagnarhefð á Íslandi. Samstarfið spratt upp úr löngun til að skapa rými fyrir ólíkar raddir og tengslamyndun gegnum sögur og samveru. Hópurinn vinnur með mismunandi nálganir að frásagnarlist, bæði hefðbundinn og nútímalegri frásagnarstíl.

18:00-18:50

0

 Nordic Culture Point & Grænlandssjóður

Aðgengi

Wheelchair with Exclamation Mark

Rampur liggur að útidyrahurð. Hurð opnast ekki sjálfkrafa. Um 5 cm. þröskuldur er inn í hús með hallandi lista þegar farið er inn í hús. Engin listi er við þröskuld út úr húsi. Auðvelt er að komast um innanhúss, lyftuaðgengi er á milli 1. og 2. hæðar og listar eru við alla þröskulda sem opnir eru almenning. Aðgengilegt salerni er á 1. hæð en það er þó í minna lagi. Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er í Tjarnargötu við Tjarnarskóla.

Headphones

Sérstakt næðisrými er á 2. hæð.

Öll salerni eru kynlaus.

Strætóleiðir á viðburð
LEIÐ 1
LEIÐ 2
LEIÐ 3
LEIÐ 6
LEIÐ 11
LEIÐ 12
LEIÐ 13
LEIÐ 55
LEIÐ 103