30. maí -14. júní 2026

FLÆÐI: Sólon Íslandus & Mógil

2. JÚN - 15. JAN
20:00
ÞJÓÐMINJASAFNIÐ

FLÆÐI er sýning á völdum verkum Sölva Helgasonar (1820-1895) alþýðulistamanns, sem gekk undir nafninu Sólon Íslandus.

Verk Sölva hafa alla tíð notið aðdáunar og fléttast saman við sögu hans sjálfs, alþýðulistamannsins sem lét hvorki vistarbönd né önnur boð og bönn samfélagsins hafa áhrif á líf sitt.

Segja má að verk Sölva hafi flætt á milli tímabila og listforma en flæðið er lykilhugtak í höfundaverki hans þar sem fígúratívar teikningar, texti og ýmiskonar krot renna saman í frumlegan myndheim. Næmni hans birtist í fínlegum skreytingum þar sem blómsveigar og annað mynstur liðast um pappírinn, oft með óvæntri viðbót þegar stafir, mannsandlit eða önnur tákn birtast. Þannig vísar Sölvi í umhverfið á ferðum sínum.

Við opnun sýningarinnar heldur hljómsveitin Mógil útgáfu tónleika á nýrri plötu sinni, en innblástur hennar er fenginn úr myndum og textum Sölva. Platan ber við­varandi áhrifum Sölva Helgasonar á listsköpun annarra glöggt vitni. Tónlist Mógils verður einnig hluti af sýningunni sjálfri.

Sölvi Helgason (1820–1895) Hljómsveitin Mógil: Heiða Árnadóttir, söngur Eiríkur Orri Ólafsson, trompet Joachim Badenhorst, klarinett Kristín Þóra Haraldsdóttir, víóla Hilmar Jensson, rafgítar
Sýningarstjóri: Karólína Stefánsdóttir
Skipuleggjandi: Þjóðminjasafn Íslands

Opnun 1. júní kl. 20:00
Opnunartími: Daglega kl. 10:00–17:00

0-3.300 kr.

Aðgengi

Hjólastóll

Aðgengi að Þjóðminjasafninu er almennt gott. Auðvelt er að komast inn og um hús og lyftuaðgengi er á milli hæða. Aðgengilegt salerni er í húsinu. Tvö sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við húsið.  

 

Sjónlýsingar: Hægt er að panta sjónlýsingu fyrir blint og sjónskert fólk með því að senda póst með smá fyrirvara á kennsla@thjodminjasafn.is

 

Skynnæmir: Á 2. hæð í húsinu er rólegt afdrep.

Strætóleiðir á viðburð
LEIÐ 1
LEIÐ 2
LEIÐ 3
LEIÐ 6
LEIÐ 12
LEIÐ 55