30. maí -14. júní 2026

FLÆÐI - nánara aðgengi

Sýning á verkum Sölva Helgasonar á Þjóðminjasafninu

Aðgengislýsing

Wheelchair

Sýningin fer fram á 1. hæð Þjóðminjasafnsins. Aðgengi er almennt gott. Útidyr eru sjálfvirkar rennihurðir og ekki eru þröskuldar við þær. Auðvelt er að komast um rýmið. Öll sýningarrými hússins eru aðgengileg um lyftur, eina í móttöku og aðra í norðurenda hússin. Engir þröskuldar eru í rýminu en á aðalsýningu eru rampar.

Á tónleikum á opnun verður stólum raðað upp og auðvelt að gera sérhjólastólastæði þar sem þess er óskað. Ekki þarf að bóka slík stæði sérstaklega. 

Í sýningarrýminu eru bekkir án arma.

Hægt er að fá lánaðan hjólastól í móttöku safnsins.

Aðgengilegt salerni er hjá öðrum salernum í kjallara safnsins og er það aðgengilegt frá lyftu úr móttöku.

Tvö sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru beint fyrir framan aðalinngang safnsins. 

Eye

Hægt er að panta sjónlýsingu fyrir blint og sjónskert fólk með því að senda póst með smá fyrirvara á kennsla@thjodminjasafn.is

Headphones

Á 2. hæð í húsinu er rólegt afdrep. Rýmið er ekki sérhannað fyrir skynnæma en hefur nýst fyrir þau sem þurfa meiri ró.

Börn og örorkulífeyristakar fá frítt inn á safnið. Ekki þarf að greiða inn á safnið fyrir aðstoðarfólk og nóg er að tilkynna starfsfólki mótttöku um það við kaup á aðgangsmiða.

Aðgengilegt salerni í kjallara er kynlaust. Einnig er kynlaust salerni á 3. hæð.

Á safninu er stafrækt kaffihús sem opið er daglega frá 11 - 16.

Ekki má fara með bakpoka inn í sal en skápar til að geyma muni í kjallara.

Hægt er að fá lánaða barnakerru í móttöku.

Skiptiborð er í kjallara.