Endurlit
Endurlit er yfirlitssýning á ævistarfi Hallsteins Sigurðssonar (1945–2024), eins afkastamesta myndhöggvara á Íslandi. Sýningin er haldin í vinnustofu listamannsins að Ystaseli 37 og veitir einstaka sýn inn í sköpunarferli hans og listræna þróun sem spannar sex áratugi.
Þar mætast lykilverk úr áli, járni og steinsteypu ásamt skissum, heimildum og áður óséðu efni sem varpa ljósi á hugmynda vinnu og efnisrannsóknir. Endurlit er lifandi miðlun á arfleifð listamanns sem mótaði íslenska höggmyndalist.
Opnun 1. júní kl. 20:00
Opnunartími: Mið–sun kl. 12:00–17:00
Aðgengi
Sýningin fer fram í Ystaseli 37 sem var vinnustofa og íbúðarhús Hallsteins. Sýningin er bæði inni í húsi og á túni fyrir framan hús. Aðgengi að húsinu er gott. Bílastæði eru beint fyrir framan inngang. Rampur liggur inn á vinnustofuna en um 2 cm þröskuldur er frá vinnustofu og inn í íbúð. Á staðnum er rúmgott salerni með vaski en engum stuðningsslám. Betra aðgengi er að túninu um göngustíg sem liggur ofan við túnið. Engin slóðar eru á túninu.
Salerni er kynlaust.
