30. maí -14. júní 2026

Endurlit - nánara aðgengi

Yfirlitssýning um ævistarf Hallsteins Sigurðssonar

Skynlýsing á viðburði

Aðgengislýsing

Wheelchair with Exclamation Mark

Sýningin fer fram í Ystaseli 37 sem var vinnustofa og íbúðarhús Hallsteins. Sýningin er bæði inni í húsi og á túni fyrir framan hús. Aðgengi að húsinu er gott. Bílastæði eru beint fyrir framan inngang. Rampur liggur inn á vinnustofuna og auðvelt er að komast um rýmið. Á milli vinnustofu og íbúðarýmis er um 2 cm. þröskuldur. Í íbúðinni er rúmgott salerni með vaski en engum stuðningsslám. Salerni er upp við baðkar. Aðgengi fyrir stærri hjólastóla gæti verið takmarkað. Sýningin fer eki fram á efri hæð hússins sem er einungis aðgengileg um brattan stiga.

Hluti sýningarinnar fer fram á túni fyrir framan hús. Engir göngustígar eru á túninu. Aflíðandi brekkar liggur af bílastæði og á túnið. Betra aðgengi er af göngustíg fyrir ofan túnið, við Ölduselsskóla.  Göngustígurinn er malbikaður og liggur í hring í kringum túnið.

Aðgangur er ókeypis.

Salerni er kynlaust.

Leikvöllur er í nágrenni við húsið og gróðursælir reitir. Svæðið er því sérstaklega gott fyrir barnafjölskyldur.