Einhverfugreining SVAVS
Oft er talað um að einhverfir hafi óvenjulega sýn á fólk og heiminn.
Svava Dögg er einhverf og býður þér að koma til sín og fá heiðarlega greiningu á því sem hún sér þegar hún horfir á þig. Þú sest fyrir framan hana og hún teiknar, litar eða skrifar á blað það sem hún skynjar. Það getur tekið 5-10 mínútur og svo mátt þú eiga blaðið. Kannski getur hún útskýrt það sem birtist á blaðinu.
Aðgengi
Rampur liggur að útidyrahurð. Hurð opnast ekki sjálfkrafa. Um 5 cm. þröskuldur er inn í hús með hallandi lista þegar farið er inn í hús. Engin listi er við þröskuld út úr húsi. Auðvelt er að komast um innanhúss, lyftuaðgengi er á milli 1. og 2. hæðar og listar eru við alla þröskulda sem opnir eru almenning. Aðgengilegt salerni er á 1. hæð en það er þó í minna lagi. Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er í Tjarnargötu við Tjarnarskóla.
Sérstakt næðisrými er á 2. hæð.
Öll salerni eru kynlaus.
