Draumar og veruleiki: TINNA
TINNA er virkniúrræði fyrir unga, einstæða foreldra á vegum Reykjavíkurborgar og félags og húsnæðismála ráðuneytisins. Í TINNU sækja þátttakendur ýmsa virkni og hafa m.a. unnið saman að listsköpun í hópi undir handleiðslu myndlistarkennarans Fríðu Maríu Harðardóttur frá árinu 2020.
Fyrsta sýning TINNUhópsins var haldin árið 2021 í Fjölskyldumiðstöðinni í Gerðubergi en sex sýningar hafa verið haldnar síðan samstarfið hófst. Samsýningin Draumar og veruleiki er afrakstur TINNU-hópsins þar sem ungar konur hafa unnið að því að tengjast sjálfum sér og öðrum konum í gegnum sköpun myndlistar.
Þær fengu fræðslu, kynntu sér efni og aðferðir, fengu þjálfun í tækni, gerðu æfingar út frá skynjun og samtali, virkjuðu forvitnina og ímyndunaraflið og fundu farveg fyrir persónulega tjáningu. Ekki síst fengu þær tækifæri til að upplifa listsköpun sem heilandi ferli.
Opnun 6. júní kl. 14:00-16:00
Opnunartímar:
Mán–fim: 08:00–18:00
Fös: 08:00–16:00
Aðgengi
Aðgengi í Gerðubergi er almennt gott. Auðvelt er að komast inn og um hús og lyftuaðgengi er á milli hæða. Aðgengileg salerni eru á 1. hæð. Þrjú sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang á 1. hæð.
