Draumar & veruleiki - nánara aðgengi
Skynlýsing á viðburði
Aðgengislýsing
Sýningin fer fram í sýningarsal á 1. hæð í Gerðubergi. Aðgengi er almennt gott. Hægt er að ganga inn frá torgi ofan við húsið eða af bílastæði fyrir neðan hús. Rennihurðir sem opnast sjálfkrafa eru við báða innganga. Engir þröskuldar eru í húsinu og lyfta gengur á milli hæða.
Í húsinu eru tvö aðgengileg salerni á neðri hæð inni á kynjaskiptum salernum fyrir almenning. Kvennamegin eru þrjú salerni, þar af eitt aðgengilegt. Karlamegin eru tvö salerni, þar af eitt aðgengilegt.
Þrjú sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru beint fyrir utan inngang á neðri hæð. Beygt er inn Gerðuberg af Austurbergi.
Aðgangur að sýningunni er ókeypis.
Kynlaus salerni eru á 2. hæð.
Á staðnum er kaffihús á 2. hæð sem opið er alla virka daga frá kl. 10 - 17 og á laugardögum frá kl. 11 - 17.
Bókasafn er á 2. hæð með góðu afþreyingarsvæði fyrir börn.
Skiptiaðsta er á báðum salernum á 1. hæð
