echolalia
Á hálfrar aldar ferli hefur Björk Guðmundsdóttir verið óþreytandi við að þenja hefðbundin mörk tónlistar formsins og í stöðugum tilraunum sínum ofið saman listum, náttúru og tækni.
Þrjár innsetningar veita gestum einstakt tækifæri til að upp lifa alltumlykjandi verk sem búa yfir kynngimagnaðri hljóðrænni, sjónrænni og tilfinningalegri dýpt. Tvö þeirra eru tregaljóð, samin og útsett af Björk í minningu móður hennar, og hið þriðja er nýtt verk af væntanlegri plötu Bjarkar. Í Ancestress er tekist á við hringrás lífsins. Í afskekktum dal birtist okkur eins konar helgiganga tónlistarfólks og dansara. Verkið er samið og útsett af Björk fyrir strengja sveit og slagverk.
Hið pólýfóníska þriggjakóraverk Sorrowful Soil er sálu messa þar sem kanónlegar laglínur veltast um á milli radda. Úr þrjátíu hátölurum berast einstaka raddir meðlima Hamrahlíðarkórsins, undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Verkið er samið og útsett af Björk fyrir níu radda kór.
Samhliða sýningu Bjarkar stendur yfir sýning James Merry í sal 4, Ummyndlingar, en tvíeykið hefur unnið náið saman í fjölda ára.
Aðgengi
Hjólastóll með upphrópunarmerki
Aðgengi innandyra í Listasafni Íslands er almennt gott. Auðvelt er að komast inn og um hús og lyftuaðgengi er á milli hæða. Aðgengilegt salerni er á 1. hæð. Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er í Tjarnargötu en einnig er leyfilegt að keyra stíginn að inngangi safnsins ofan við Fríkirkjuna og hleypa út úr bílnum.
Sjónlýsingar: Hægt er að panta sjónlýsingu fyrir blint og sjónskert fólk um sýninguna. Panta þarf með fyrirvara.
