Batamatur: Codapent - gnocchismiðja
Þátttakendur búa til kartöflugnocchi frá grunni og snæða undir hug- og handleiðslu listamannanna. Verkið fer fram á mörkum matreiðslu og sjálfshjálparnámskeiðs. Hver og einn þátttakandi velur sínar kartöflur af kostgæfni og skapar gnocchi með eigin nefi og hjarta. Fólk er leitt inn á við, í gegnum hug og hönd, og boðið að tengjast ákveðnum parti af sjálfu sér til að framkalla og móta í form úr deiginu sínu. Gnocchi-formin eru loks elduð og snædd. Þetta er líkamleg og andleg athöfn. Augnablik í stóra samhenginu. Augnablik til að innbyrða. Hverfult. Það sem vill gerast fær að gerast. Það sem þú finnur fær að finnast. Og finna sitt form.
12:00-16:00
Komið og farið að vild
Aðgengi
Rampur liggur að útidyrahurð. Hurð opnast ekki sjálfkrafa. Um 5 cm. þröskuldur er inn í hús með hallandi lista þegar farið er inn í hús. Engin listi er við þröskuld út úr húsi. Auðvelt er að komast um innanhúss, lyftuaðgengi er á milli 1. og 2. hæðar og listar eru við alla þröskulda sem opnir eru almenning. Aðgengilegt salerni er á 1. hæð en það er þó í minna lagi. Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er í Tjarnargötu við Tjarnarskóla.
Sérstakt næðisrými er á 2. hæð.
Öll salerni eru kynlaus.
