30. maí -14. júní 2026

24. apríl 2026

Listahátíð leitar að vöskum sjálfboðaliðum

Langar þig að upplifa Listahátíð í Reykjavík bakvið tjöldin? Hefurðu áhuga á að auka reynslu þínni á viðburðastjórn, kynnast nýju fólki og baða þig í list í nokkra daga?

Okkur vantar sprækt og áreiðanlegt fólk til að aðstoða okkur við allt mögulegt á hátíðinni 30. maí - 14. júní næstkomandi.

Listahátíð í Reykjavík vinnur eftir aðgengisstefnu og leitast við að endurspegla fjölbreytileika mannlífsins, hvort sem er um að ræða listafólk, starfsfólk eða sjálfboðaliða.

Smelltu hér til að fylla út eyðublað og sækja um að vera sjálfboðaliði á Listahátíð í Reykjavík 2026.