1.-16. júní 2024

1. september 2020

Nýjar dagsetningar Valkyrju Wagners

Það gleður okkur að tilkynna að Valkyrja Wagners, sem til stóð að sýna í maí sl., hefur fundið nýjar dagsetningar á Listahátíð og verður flutt dagana 25. og 27. febrúar 2021 í Eldborg – í samstarfi Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Íslensku óperunnar á Listahátíð í Reykjavík.

Hljómsveitinni stjórnar Eva Ollikainen. Leikstjóri er Julia Burbach og videóhönnuður Tal Rosner, en hann hefur meðal annars unnið til BAFTA-verðlaunanna og starfað við National Theatre í Lundúnum og Lincoln Center í New York.

Þetta verður í fyrsta sinn sem óperan er flutt í fullri lengd á Íslandi  og markar flutningurinn því tímamót í sögu óperuflutnings á Íslandi.

Miðasala fer fram í Hörpu og verður hægt að nálgast miða þar og á netinu.