1.-16. júní 2024

12. desember 2020

Listagjöf endurtekin um land allt

Listahátíð í Reykjavík, með stuðningi frá Mennta- og menningarmálaráðuneyti, mun dagana 19. & 20. desember 2020 bjóða upp á aðra útgáfu af hinu vel heppnaða verkefni Listagjöf – að þessu sinni um land allt!

Á sérhönnuðu vefsvæði listagjof.listahatid.is mun almenningur geta pantað Listagjöf fyrir ástvin frá og með mánudeginum 14. desember. Gjöfin er án endurgjalds en takmarkast við eina pöntun á mann. Listagjafir verða í boði um land allt. Allt að 750 gjafir verða í boði og verða þær ,,afhentar“ helgina 19.-20. desember.

Hver listagjöf er um það bil fimm til tíu mínútna flutningur á tónlist, dansi eða ljóðalestri frá mörgu af okkar allra besta listafólki. Sá eða sú sem bókar gjöfina sér til þess að viðtakandinn verði heima þegar gjöfin verður afhent og tekur að auki á móti listamanninum. Flutningurinn fer svo fram í öruggri covid-fjarlægð frá þiggjanda gjafarinnar, utandyra ef þess er nokkur kostur eða annars staðar þar sem hægt er að tryggja örugga fjarlægð.