
5. júní 2025
30. maí -14. júní 2026
5. júní 2025
Listahátíð í Reykjavík fer fram dagana 30. maí – 14. júní 2026 og er því ár til stefnu. Ekki er úr vegi að tilkynna um fyrstu viðburði hátíðarinnar sem er nú leidd af nýjum listrænum stjórnanda, Láru Sóleyju Jóhannsdóttur.
Einn af opnunarviðburðum hátíðarinnar er flutningur Sinfóníuhljómsveitar Íslands á áttundu sinfóníu Mahlers í Hörpu sem er eitt helsta stórvirki tónlistarsögunnar og hefur aldrei áður verið flutt hér á landi. Á sviðinu verða á fjórða hundrað flytjenda; stækkuð hljómsveit, átta einsöngvarar, kór og barnakór. Verkið er fagnaðaróður til kærleika og mennsku og geislar af bjartsýni og samstöðu. Hljómsveitarstjóri er Eva Ollikainen, aðalhljómsveitastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, og fara tónleikarnir fram föstudaginn 29. maí kl. 19:30 og laugardaginn 30. maí kl. 17:00 í Eldborg.
Hildur Guðnadóttir er hátíðarlistamaður Listahátíðar í Reykjavík 2026. Þrír viðburðir verða á dagskrá þar sem tónlist Hildar er í fyrirrúmi. Fimmtudaginn 4. júní leiðir hún dagskrá í Eldborg á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands þar sem hún segir frá eigin verkum og áhrifavöldum sínum. Flutt verður tónlist Hildar úr kvikmyndunum Joker, Tár og Haunting in Venice auk verka eftir tónskáld á borð við Arvo Pärt, Ryuichi Sakamoto og Kaja Saariaho. Tónleikarnir eru samstarf Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Listahátíðar og hljómsveitarstjóri er Daníel Bjarnason.
Laugardaginn 6. júní kl. 20:00 fara fram tónleikar í Silfurbergi í Hörpu þar sem Hildur ásamt hljómsveit flytur í fyrsta sinn á Íslandi verkið Where to From ásamt eldra efni. Um verkið segir Hildur:
„Ég er nánast með stöðugan straum af tónlist í höfðinu. Stundum tek ég strauminn upp og er hann þá eins konar skjáskot af tilfinningum mínum á þeim tímapunkti. Where to From er hljóðdagbókin mín. Ég hlakka til að opna hana fyrir áheyrendum í Hörpu ásamt góðum vinum”.
Where to From er pantað af Listahátíð í Reykjavík, Barbican Centre, Vienna Konzerthaus og Holland Festival. Auk Hildar, sem syngur og leikur á selló, koma fram Liam Bryne sem leikur á víólu da gamba, söngkonurnar Jessika Kenney og Else Torp, víóluleikarinn Eyvind Kang og sellóleikarinn Claire O’Connell. Um ljósahönnun sér Theresa Baumgartner og hljóðhönnun er í höndum Francesco Donadello.
Sunnudaginn 7. júní kl. 17:00 horfum við til fortíðar, nútíðar og framtíðar og rýnum tengslin þar á milli í samstarfi við Hallgrímskirkju á tónleikum þar sem flutt verða verk eftir Hildi og Jón Nordal. Meðal flytjenda eru Kór Hallgrímskirkju undir stjórn Steinars Loga Helgasonar, Björn Steinar Sólbergsson og Álfheiður Erla Guðmundsdóttir.
“Þakklæti er mér efst í huga þegar kemur að því að vera hátíðarlistamaður Listahátíðar í Reykjavík. Það er mikill heiður að koma heim og deila með landsmönnum brot af því sem ég hef verið að fást við á undanförnum áratugum. Ég hlakka til samstarfsins við Sinfóníuhljómsveit Ísland og Kór Hallgrímskirkju og að flytja glænýja tónlist með góðum vinum sem ég mun ferðast með og flytja víðsvegar um heiminn á næstu árum.” sagði Hildur.
Miðasala á tónleika Hildar og Sinfóníuhljómsveitar Íslands hefst 11. júní 2025.
Miðasala á Where to from og á tónleika Kórs Hallgrímskirkju á Listahátíð hefst í haust.