
22. maí 2026
30. maí -14. júní 2026
22. maí 2026
Við tökum forskot á sæluna um helgina og opnum fyrstu tvær sýningar Listahátíðar 2026. Sýningarnar eru báðar á Vestfjörðum, á Djúpavík og í Selárdal.
Laugardaginn 23. maí opnar í gömlu síldarverksmiðjunni á Djúpavík sýningin The Factory: Að nálgast hið ókunna. Þar vinnur sýningarstjórinn Emilie Dalum með þemað tengsl og verður m.a. unnið með staðbundna list í beinum tengslum við sjálfa verksmiðjubygginguna. Hvað gerist þegar sýningarrýmið er ekki einungis skel utan um listina heldur tekur raunverulega þátt í sköpunarferlinu?
Sunnudaginn 24. maí kl 15:00 opnar Listvinnzlan sýninguna ÓMUR í Listasafni Samúels, í Selárdal. Í þessu magnaða safni þar sem verk Samúels Jónssonar rísa úr landslaginu eins og minningar mótaðar í steypu, mætast ólíkar raddir í sameiginlegum hljómi. Hópur listafólks sýnir þar ný verk sem unnin eru í samtali við þennan einstaka höggmyndagarð og verða þannig hluti af umhverfi hans. Sýningarstjóri er Margrét M. Norðdahl.
Báðar sýningar verða opnar fram í september og opið alla daga í sumar.