30. maí -14. júní 2026

Tilraunakvöld tóma rýmisins

2. JÚN
18:00
IÐNÓ

tóma rýmið blæs til tilraunakvölds!

tóma rýmið er vinnustofa og tilraunaleiksvið sviðslista­fólks sem ætlað er til frumsköpunar á sviðsverkum. tóma rýmið hefur staðið fyrir mánaðarlegum tilraunakvöldum síðustu ár þar sem meðlimir sýna áhorfendum tilraunir og skissur að verkum sínum. Nú tekur hópurinn Iðnó yfir eitt sumarkvöld. Opnað út á milli verka til að gefa gestum færi á að koma seint, fara snemma, fá sér sopa og spjalla. Baktal og smjaður í reykingaportinu, brothættar sjálfsmyndir baksviðs.

Verkin eru ýmist á íslensku, öðrum tungumálum eða hreinlega án orða.

Velkomin!

Snæfríður Sól Gunnarsdóttir, Sóley Ólafsdóttir, Birnir Jón Sigurðsson, Aron Martin Ásgerðarson, Eygló Höskuldsdóttir, Félix Urbina Alejandre, Katrín Lóa Hafsteinsdóttir, Hallveig Kristín Eiríksdóttir og Marta Ákadóttir
0

Aðgengi

Wheelchair with Exclamation Mark

Rampur liggur að útidyrahurð. Hurð opnast ekki sjálfkrafa. Um 5 cm. þröskuldur er inn í hús með hallandi lista þegar farið er inn í hús. Engin listi er við þröskuld út úr húsi. Auðvelt er að komast um innanhúss, lyftuaðgengi er á milli 1. og 2. hæðar og listar eru við alla þröskulda sem opnir eru almenning. Aðgengilegt salerni er á 1. hæð en það er þó í minna lagi. Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er í Tjarnargötu við Tjarnarskóla.

Hearing loop

Sérstakt næðisrými er á 2. hæð.

Öll salerni eru kynlaus.

Strætóleiðir á viðburð
LEIÐ 1
LEIÐ 2
LEIÐ 3
LEIÐ 6
LEIÐ 11
LEIÐ 12
LEIÐ 13
LEIÐ 55
LEIÐ 103