30. maí -14. júní 2026

Samfélag, listir & líðan

9. JÚN
13:00
IÐNÓ

Nemendur í meistaranámi í Listum og velferð við Listaháskóla Íslands eru breiður hópur fagfólks sem hefur áhuga á að þróa leiðir til að nýta listir í þágu félags- og heilsueflingar ásamt því að auka aðgengi og þátttöku ólíkra hópa í listtengdum verkefnum og viðburðum.

Á dagskrá verða meðal annars örverk, kynningar á listrannsóknum og tilraunir.

Fagfólk sem starfar að velferðarmálum er sérstaklega hvatt til að mæta.

Nánari lýsing á viðburði:

Hvað ef listin byði sig fram?

Meistaranám í listum og velferð umbreytist í stjórnmálaafl þar sem listin býður fram hlýju, traust, virðingu, aðgengi, samkennd og sköpunargleði sem stefnumál fyrir mýkra samfélag.

Frá kl.13.00-17.00 geta gestir:

Kynnt sér stefnuskrá Listaflokksins, horft á kosningavídeó

Búið til kröfuspjöld

Tekið þátt í að móta stefnuskrá flokksins

Sett hugmyndir í kjörkassa

Tekið þátt í skapandi verkefnum og leikjum sem auka tengsl og opna samtal.  

Við spyrjum: 

Hvað gerir list og sköpun fyrir þig og hvað gæti hún gert ef hún fengi meira pláss í samfélaginu?

Hvernig geta listir haft áhrif á líðan og heilsu fólks?

Uppákomur:

13:20 – Opinn danstími með Seiglunni 

14:00 – Söngur og tónlist

14:30 – Kynningar á útskriftarverkefnum nemenda úr MA, Listum og velferð.

15:15 – Fíflalæti - Áhrif alvörulausra leikja á fullorðið fólk. Stýrt af Alexíu Björg 

16:00 – Pallborð - Hvaða erindi eiga listir í velferðarkerfinu?

Stýrt af Ástbjörgu Rut Jónsdóttur. 

Í pallborði:

Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir, sviðshöfundur og fötlunarlistakona með næstum 5 háskólagráður. Elín Ebba Ásmundsdóttir, framkvæmdastjóri Hlutverkaseturs.

Regn Sólmundur Evu, myndlistarkvár.

Kristín Valsdóttir, prófessor við listkennsludeild LHÍ og fagstjóri MA í Listum og velferð. 

Hjördís Anna Haraldsdóttir, baráttu- og fjöllistakona.

Í Sunnusal verða þátttökuverkefni og æfingar sem snúa að tengingu, nærveru, skynjun og slökun á milli klukkan 13 og 16..

Pallborð verður táknmálstúlkað.

Dagskrárvaldið er í höndum nemenda sem hafa sótt námskeiðið Samfélag, listir og líðan undir handleiðslu Hrefnu Lindar Lárusdóttur sviðslistakonu og Dr. Sigrúnar Sigurðardóttur. Nemendur í námskeiðinu eru Ástbjörg Rut Jónsdóttir, Björk Ásgrímsdóttir, Elínborg Auður Hákonardóttir, Hafdís Huld Þrastardóttir, Hallveig Rúnarsdóttir, Hrafnhildur Einarsdóttir, Íris Ösp Sveinbjörnsdóttir, Karólína Baldvinsdóttir, Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir, Marteinn Steinar Þórsson, Rebekka Ashley Egilsdóttir, Rebekka Víðisdóttir, Steinar Ari Kristmundsson, Sunneva Líf Albertsdóttir & Unnur Þorgeirsdóttir.
0

Aðgengi

Wheelchair with Exclamation Mark

Rampur liggur að útidyrahurð. Hurð opnast ekki sjálfkrafa. Um 5 cm. þröskuldur er inn í hús með hallandi lista þegar farið er inn í hús. Engin listi er við þröskuld út úr húsi. Auðvelt er að komast um innanhúss, lyftuaðgengi er á milli 1. og 2. hæðar og listar eru við alla þröskulda sem opnir eru almenning. Aðgengilegt salerni er á 1. hæð en það er þó í minna lagi. Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er í Tjarnargötu við Tjarnarskóla.

Headphones

Sérstakt næðisrými er á 2. hæð.

Öll salerni eru kynlaus.

Strætóleiðir á viðburð
LEIÐ 1
LEIÐ 2
LEIÐ 3
LEIÐ 6
LEIÐ 11
LEIÐ 12
LEIÐ 13
LEIÐ 55
LEIÐ 103