Linked by Óheimsk
Hrífandi verk þar sem blandað er saman dansi, lifandi hljóði, matarlist, myndefni og töluðu máli. Fjölbreyttur hópur listafólks sem hefur mótast af lífinu á Íslandi og sameinast í gegnum reykvíska grasrót fléttar einstökum röddum sínum saman í marglaga heild. Í verkinu kanna þau og fagna tengslum milli listgreina, sjálfsmynda og umhverfis.
Þórður Steinþórsson sér um gagnvirka hljóðhönnun og tónlist. Máni Sigurðsson hannar lifandi myndefni. Pola Sutryk býr til æta innsetningu og Katie Hitchcock leggur til dans og talað mál. Framlag þeirra allra er flutt samtímis og áhorfendur hvattir til að upplifa verkið með öllum skilningarvitum og sökkva sér ofan í heiminn sem listamennirnir hafa skapað.
Aðgengi
Rampur liggur að útidyrahurð. Hurð opnast ekki sjálfkrafa. Um 5 cm. þröskuldur er inn í hús með hallandi lista þegar farið er inn í hús. Engin listi er við þröskuld út úr húsi. Auðvelt er að komast um innanhúss, lyftuaðgengi er á milli 1. og 2. hæðar og listar eru við alla þröskulda sem opnir eru almenning. Aðgengilegt salerni er á 1. hæð en það er þó í minna lagi. Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er í Tjarnargötu við Tjarnarskóla.
Sérstakt næðisrými er á 2. hæð.
Öll salerni eru kynlaus.