30. maí -14. júní 2026

Ummyndlingar

30. MAÍ - 21. SEP
18:00
LISTASAFN ÍSLANDS

James Merry hefur á síðasta áratug skapað grímur sem eru í raun umbreytingarafl, driffjöður í listgjörningum og gátt að breyttri sjálfsmynd. Í brennipunkti sýningar­innar er augnablikið þegar hamskiptin verða – þegar formið og sjálfið flæða saman. Ummyndlingar er fyrsta yfirlits sýningin á verkum Merrys en þar verða rúmlega áttatíu verk.

Grímurnar bera vitni um einstakt handbragð þar sem blandað er saman hefðbundnum aðferðum og öðrum nýstárlegri; útsaumur, málmsmíði, þrívíddarprentun, silfur smíði og gagnvirk, stafræn verk. Úr verður sveigur síkvikra sköpunarverka er veita okkur djúpstæða innsýn í óbilandi hrifningu Merrys á lífríkinu, sem og áhuga hans á fornleifafræði og fornum helgisiðum.

Margar af grímunum á sýningunni skapaði lista maðurinn fyrir Björk Guðmundsdóttur en þau hafa átt í listrænu sam starfi til lengri tíma. Á sýningunni verða einnig verk sem unnin hafa verið fyrir aðra listamenn eins og Tildu Swinton og Iris van Herpen. Sum þessara verka hafa áður verið sýnd á listviðburðum og hátískusýningum en hér gefst einstakt tækifæri til að upplifa grímurnar sem sjálfstæð verk.

James Merry

Opnun 30. maí kl.18:00

Opnunartími: Daglega 10:00–17:00

0-2.500 kr.
Kaupa miða

Aðgengi

Aðgengi innandyra í Listasafni Íslands er almennt gott. Auðvelt er að komast inn og um hús og lyftuaðgengi er á milli hæða. Aðgengilegt salerni er á 1. hæð. Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er í Tjarnargötu en einnig er leyfilegt að keyra stíginn að inngangi safnsins ofan við Fríkirkjuna og hleypa út úr bílnum.

 

Sjónlýsingar: Hægt er að panta sjónlýsingu fyrir blint og sjónskert fólk um sýninguna. Panta þarf með fyrirvara.

Strætóleiðir á viðburð
LEIÐ 1
LEIÐ 2
LEIÐ 3
LEIÐ 6
LEIÐ 11
LEIÐ 12