Lokapartý
Klúbburinn býður upp í dans áður en hátíðin leggst í dvala!
Plötusnúðarnir Choconilla & dj Lui blása ferskum blæ í partýið með ástríðu sinni fyrir tónlist frá Afríku. Þau hafa undirbúið rjúkandi heita afríska kássu sem er krydduð með amapiano, afrobeat og dassi af popptónlist. Plötusnúðurinn 101 Savage og VJ-arnir Gabríel Benedikt Bachmann og María Guðjohnsen halda síðan áfram að hræra upp í lýðnum með sérvaldri tónlist og vídjóverkum sem þeyta gestum inn í bjarta sumarnóttina.
Komdu eins og þú ert eða vilt vera. Öll velkomin!
Húsið opnar 20:00
Dj sett hefjast 21:00
Aðgengi
Rampur liggur að útidyrahurð. Hurð opnast ekki sjálfkrafa. Um 5 cm. þröskuldur er inn í hús með hallandi lista þegar farið er inn í hús. Engin listi er við þröskuld út úr húsi. Auðvelt er að komast um innanhúss, lyftuaðgengi er á milli 1. og 2. hæðar og listar eru við alla þröskulda sem opnir eru almenning. Aðgengilegt salerni er á 1. hæð en það er þó í minna lagi. Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er í Tjarnargötu við Tjarnarskóla.
Sérstakt næðisrými er á 2. hæð.
Öll salerni eru kynlaus.
