30. maí -14. júní 2026

Lestin í lifandi flutningi

12. JÚN
20:00
IÐNÓ

Útvarpshlustun í nútímanum á sér vanalega stað í einrúmi. Hvað gerist ef við hlustum saman? 

Lestin á Rás 1 er í umsjón Kristjáns Guðjónssonar og Lóu Bjarkar Björnsdóttur og er útvarpað fjóra daga vikunnar. Í þetta sinn ætla þau að taka upp Lestarþátt í Klúbbnum. Þessi kvöldstund snýst um að bjóða áheyrendum inn í útvarpsþáttinn, færa hlustendur nær efninu, opna á samtal og samveru.

0

Aðgengi

Wheelchair with Exclamation Mark

Rampur liggur að útidyrahurð. Hurð opnast ekki sjálfkrafa. Um 5 cm. þröskuldur er inn í hús með hallandi lista þegar farið er inn í hús. Engin listi er við þröskuld út úr húsi. Auðvelt er að komast um innanhúss, lyftuaðgengi er á milli 1. og 2. hæðar og listar eru við alla þröskulda sem opnir eru almenning. Aðgengilegt salerni er á 1. hæð en það er þó í minna lagi. Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er í Tjarnargötu við Tjarnarskóla.

Headphones

Sérstakt næðisrými er á 2. hæð.

Öll salerni eru kynlaus.

Strætóleiðir á viðburð
LEIÐ 1
LEIÐ 2
LEIÐ 3
LEIÐ 6
LEIÐ 11
LEIÐ 12
LEIÐ 13
LEIÐ 55
LEIÐ 103