30. maí -14. júní 2026

Leidd

10. JÚN
20:00
IÐNÓ

Í leit að tengingu og úrvinnslu áfalla í gegnum tónlist mætir dúettinn Ingibjargir þeim Kristófer Rodriguez Svönusyni slagverksleikara og Óskari Guðjónssyni saxófónleikara. Í verkinu Leidd flytur hópurinn spunaverk og eigin tónsmíðar sem fléttast saman í heildstæða upplifun og býður áheyrendum, í þögn eða þátttöku, að upplifa heilandi mátt tónlistar.

Tónleikarnir eru afslappaðir. Áheyrendur dreifast um rýmið, geta legið á grjónapúðum, setið eða staðið eins og þeim sýnist og ferðast á milli staða.

Að tónleikum loknum býður listafólkið upp á spjall.

Leidd er samstarfsverkefni dúettsins Ingibjarga (Ingibjörg Fríða Helgadóttir söngkona og Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir tónskáld), Kristófers Rodriguez Svönusonar slagverksleikara og Óskars Guðjónssonar saxófónleikara. Nálgun þeirra og bakgrunnur spanna víðfemt svið tónlistar en hér sameinast þau í leit sinni og vangaveltum um heilun í gegnum tónlist.
0

Aðgengi

Wheelchair with Exclamation Mark

Rampur liggur að útidyrahurð. Hurð opnast ekki sjálfkrafa. Um 5 cm. þröskuldur er inn í hús með hallandi lista þegar farið er inn í hús. Engin listi er við þröskuld út úr húsi. Auðvelt er að komast um innanhúss, lyftuaðgengi er á milli 1. og 2. hæðar og listar eru við alla þröskulda sem opnir eru almenning. Aðgengilegt salerni er á 1. hæð en það er þó í minna lagi. Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er í Tjarnargötu við Tjarnarskóla.

Hearing loop

Sérstakt næðisrými er á 2. hæð.

Öll salerni eru kynlaus.

Strætóleiðir á viðburð
LEIÐ 1
LEIÐ 2
LEIÐ 3
LEIÐ 6
LEIÐ 11
LEIÐ 12
LEIÐ 13
LEIÐ 55
LEIÐ 103