Krakkakaffihúsið
Krakkakaffihúsið býður upp á sköpun, leiki og veitingar fyrir unga sem aldna gesti. Þar hafa börnin dagskrárvaldið og fá rými fyrir frjálsan leik og sköpun, tækifæri til að taka þátt í listrænum viðburðum og til að deila kökusneið og kakóbolla með vinum. Kaffihúsið er enn fremur félagslegur vettvangur þar sem allir gestir geta orðið félagsmenn og tekið þátt.
Komið og farið að vild
Tjarnarbíó
Aðgengi
Rampur liggur að útidyrahurð. Hurð opnast ekki sjálfkrafa. Um 5 cm. þröskuldur er inn í hús með hallandi lista þegar farið er inn í hús. Engin listi er við þröskuld út úr húsi. Auðvelt er að komast um innanhúss, lyftuaðgengi er á milli 1. og 2. hæðar og listar eru við alla þröskulda sem opnir eru almenning. Aðgengilegt salerni er á 1. hæð en það er þó í minna lagi. Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er í Tjarnargötu við Tjarnarskóla.
Sérstakt næðisrými er á 2. hæð.
Öll salerni eru kynlaus.
