30. maí -14. júní 2026

John Grant

13. JÚN
20:00
ELDBORG, HARPA

John Grant heldur stórtónleika ásamt hljómsveit í Eldborg í Hörpu, hans fyrstu hérlendis um langa hríð.

John Grant hefur um árabil verið búsettur á Íslandi og gegnt áberandi hlutverki í innlendu og alþjóðlegu tónlistar­lífi, bæði sem lagahöfundur og flytjandi. Ferill hans spannar rúmlega tvo áratugi og einkennist af fjölbreyttum stílbrögðum, einlægni og beittum húmor. Áhrifa miklir textar hans hafa snert áheyrendur um heim allan enda er hann þekktur fyrir að fjalla um eigin lífs reynslu á heiðarlegan og hispurslausan hátt. Plötur hans hafa hlotið lof gagnrýnenda og skipað honum sess á meðal eftirtektarverðustu listamanna samtímans.

Á tónleikunum í Eldborg flytur tónlistarmaðurinn úrval laga frá ferli sínum, þar á meðal lög af nýjustu plötunni, The Art of the Lie sem kom út árið 2024 og hlaut frábæra dóma. John Grant er þekktur fyrir einstaka rödd og sterka nærveru á sviði.

Tónlistarkonan RAKEL hitar upp fyrir John Grant ásamt hljómsveit sinni. Hún hefur á undanförnum árum skapað sér sérstöðu í íslenskri tónlistarsenu með einstæðum hljóm og marglaga tónsmíðum.

John Grant
RAKEL
4.900-16.900 kr.
Kaupa miða

Aðgengi

Wheelchair

Aðgengi í Eldborg er almennt gott. Auðvelt er að komast inn og um hús og lyftuaðgengi er á milli hæða. Átta hjólastólastæði eru í Eldborg. Aðgengileg salerni eru á öllum hæðum Hörpu. 19 sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru í bílakjallara Hörpu og 2 stæði sjávarmegin við húsið sjálft.

Hearing loop

Tónmöskvi er í Eldborg.

Kynlaus salerni eru við efri bílakjallara og á gangi á 2.hæð. Aðgengileg salerni eru líka kynlaus og eru þau á öllu hæðum Hörpu.

Strætóleiðir á viðburð
LEIÐ 1
LEIÐ 2
LEIÐ 3
LEIÐ 6
LEIÐ 11
LEIÐ 12
LEIÐ 13
LEIÐ 14