Hádegisverður með .haus-samfélaginu í Reykjavík
Í hafnar.haus og hlemmur.haus er daglega boðið upp á ódýran og heilsusamlegan hádegisverð fyrir skapandi fólk sem vinnur á þessum stöðum. Á hverjum degi gefst færi á að tengjast fólki sem þú hefur aldrei hitt eða myndir aldrei hitta ef ekki væri fyrir óvænt kynni yfir matnum.
Að þessu sinni færir .haus-samfélagið hádegisverðinn yfir í Klúbbinn og opnar dyrnar fyrir öllum sem vilja finna smjörþefinn af stemningunni. Hver veit, kannski hefurðu eignast nýjan vin eða mögulegan samstarfsaðila áður en máltíðin klárast.
Hádegismatur kostar 2.000 kr. Öll velkomin.
Aðgengi
Rampur liggur að útidyrahurð. Hurð opnast ekki sjálfkrafa. Um 5 cm. þröskuldur er inn í hús með hallandi lista þegar farið er inn í hús. Engin listi er við þröskuld út úr húsi. Auðvelt er að komast um innanhúss, lyftuaðgengi er á milli 1. og 2. hæðar og listar eru við alla þröskulda sem opnir eru almenning. Aðgengilegt salerni er á 1. hæð en það er þó í minna lagi. Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er í Tjarnargötu við Tjarnarskóla.
Sérstakt næðisrými er á 2. hæð.
Öll salerni eru kynlaus.