Brothætt: Ritual I - Heilunin
Þátttökuverk um fegurðina í ófullkomleikanum
Í Heiluninni er grunngjörðin að sleppa tökum á því sem er brotið, rofið eða virkar ekki lengur. Brotið leirtau öðlast merkingu í nýju samhengi, þar sem þau sameinast og mynda stærri heild í mósaíkmynd sem verður til með þátttöku gesta. Samhliða mósaíkverkinu verður til hljóðverk byggt á nafnlausum frásögnum um það brotna í lífinu.
Gestir eru hvattir til að koma með brotið leirtau eða hluti sem ekki hafa lengur hlutverk.
Á staðnum verður einnig hægt að brjóta það sem maður vill sleppa taki á og umbreyta því í listaverk.
Fólki er boðið að færa verkinu brotið leirtau, eða leirtau sem ekki þjóna lengur tilgangi sínum.
Það sem hefur brotnað eða þarf að brotna verður hluti af sameiginlegu listaverki.
Komdu með brotið leirtau eða það sem ekki þjónar þér lengur. Saman breytum við brotum í nýja heild.
Viðvörun:
Vinsamlegast sýnið aðgát og passið sérstaklega upp á börn. Í verkinu eru brot og beitt yfirborð.
Laugardagur 30.maí 18:00-21:00
Sunnudagur 31.maí 12:00-20:00
Virkir dagar 1.- 5. júní 14:00-18:00
Laugardagur 6. júní 12:00-20:00
Sunnudagur 7. júní 12:00-20:00
Virkir dagar 8. - 12. júní 14:00-18:00
Laugardagur 13. júní 12:00-16:00
Sunnudagur 14. júní 20:00 Afhjúpun!
Listamannalaun, Dansverkstæðið & Fagurferðum
Aðgengi
Sýningin fer fram á pallinum við Iðnó. Rampar eru á báðum hliðum við pallinn en einnig er aðgengi út á pall í gegnum salinn í Iðnó. Lágur þröskuldur er við útidyrahurð.
Rampur liggur að útidyrahurð inn um aðalinngang. Útidyrahurð við aðalinngang opnast ekki sjálfkrafa. Um 5 cm. þröskuldur er inn í hús með hallandi lista þegar farið er inn í hús. Engin listi er við þröskuld út úr húsi. Auðvelt er að komast um innanhúss, lyftuaðgengi er á milli 1. og 2. hæðar og listar eru við alla þröskulda sem opnir eru almenning. Aðgengilegt salerni er á 1. hæð en það er þó í minna lagi. Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er í Tjarnargötu við Tjarnarskóla.
Sérstakt næðisrými er á 2. hæð.
Öll salerni eru kynlaus
