30. maí -14. júní 2026

Angel Blue

14. JÚN
17:00
ELDBORG

Bandaríska sópransöngkonan Angel Blue, ein áhrifa­mesta óperusöngkona samtímans og tvöfaldur Grammy­ verðlaunahafi, kemur fram á tónleikum ásamt píanó­leikaranum Bryan Wagorn.

Á síðustu árum hefur Angel vakið heimsathygli og sungið í mörgum helstu óperuhúsum heims, þar á meðal Metro­politan­óperunni, Royal Opera House í London, Opéra National de Paris og Arena di Verona. Hún hefur einnig komið fram í yfir fjörutíu löndum á einsöngstónleikum og sem einsöngvari með virtum sinfóníuhljómsveitum.

Angel er þekkt fyrir mikla breidd í túlkun sinni og þykir hafa einstakan, silkimjúkan hljóm. Á Listahátíð munu Angel og Bryan flytja fjölbreytta efnisskrá þar sem allir unnendur tónlistar ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Um er að ræða fágætt tækifæri til þess að njóta óvið­jafnan legra hæfileika framúrskarandi söngkonu sem hrífur áhorfendur jafnt með söng sínum sem og hlýrri nærveru.

Angel Blue
Bryan Wagorn
3.900-14.900 kr.
Kaupa miða

Aðgengi

Aðgengi í Eldborg er almennt gott. Auðvelt er að komast inn og um hús og lyftuaðgengi er á milli hæða. Átta hjólastólastæði eru í Eldborg. Aðgengileg salerni eru á öllum hæðum Hörpu. 19 sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru í bílakjallara Hörpu og 2 stæði sjávarmegin við húsið sjálft.

 

Tónmöskvi er í Eldborg.

Strætóleiðir á viðburð
LEIÐ 1
LEIÐ 2
LEIÐ 3
LEIÐ 6
LEIÐ 11
LEIÐ 12
LEIÐ 13
LEIÐ 14