Ómur - nánara aðgengi
Aðgengislýsing
Sýningin fer fram bæði innan og utandyra við Listasafn Samúels í Selárdal, ekið er um malarveg til að komast að safninu. Malarslóðar liggja um sýningarsvæðið og eru þeir aðgengilegir flestum hjólastólum. Sýningarsvæði Samúels er grasi vaxið og með hörðu undirlagi. Rampar eru inn í öll hús Listasafnsins og engar tröppur né þrep á leiðum gesta.
Ekki er sérmerkt bílastæði fyrir fyrir hreyfihamlaða en hægt er að leggja bílum nálægt inngangi.
Eitt almennt salerni er inni á Listasafninu og er það gengt innganginum í húsi Samúels. Salernið er rúmgott og með vaski. Engar stuðningsslár eru inni á salerninu og þar inni er einnig sturtuklefi. Fyrir utan safnið eru einnig almenningssalerni en fara þarf upp þrep til að komast að þeim.
Annað:
Aðgangur að safninu er 1.000 kr., ókeypis fyrir börn innan 13 ára
Öll salerni eru kynlaus.
Starfsfólk á staðnum getur veitt leiðsögn og aðstoðað við frekari upplýsingar.
Veitingasala er á staðnum og er hún opin 10-17 alla daga.
