RÓT - nánara aðgengi
Skynlýsing á viðburði
Aðgengislýsing
Sýningin fer fram í Tjarnarbíó. Lágur þröskuldur er við útidyrahurð. Aðgengi innanhúss er almennt gott. Engir þröskuldar né þrep eru innanhúss á leið gesta. Tvö hjólastólastæði eru í salnum fyrir framan eða til hliðar við fremstu röð og eru sæti þeirra við hlið fyrir fylgdarfólk. Hægt er að bóka stæðin í miðasölu á netinu eða með því að hafa samband við miðasölu á netfangið midasala@tjarnarbio.is.
Tvö aðgengileg salerni eru í húsinu og eru þau með almennum salernum sitthvoru megin við barinn í anddyri. Fyrir stærri stóla er betra aðgengi að salerni hægra megin.
Eitt sérmerkt bílastæði er fyrir hreyfihamlaða beint fyrir utan leikhúsið. Að auki er eitt stæði neðar í Tjarnargötunni og annað á horni Tjarnargötu og Vonarstrætis.
Boðið er upp á snerti-skoðunarferð fyrir blint og sjónskert fólk. Hægt er að koma fyrir sýningu, fá leiðsögn frá aðstandenda verksins og snerta leikmynd, leikmuni og brúður. Þetta tekur um 20 mínútur. Bóka þarf með að minnsta kosti dagsfyrirvara með því að senda póst á maisol@artfest.is.
Sýningin fimmtudaginn 4. júní verður táknmálstúlkuð af Hröðum höndum. Það eru frátekin sæti til 30. maí fyrir táknmálsfólk þar sem þau sjá túlkinn vel og geta notið sýningarinnar. Hægt er að kaupa miðana hér: https://checkout.tix.is/.../specialoffer/p6fzp24dzlz7o Eftir það er hægt að kaupa almenna miða, en ekki hægt að ábyrgjast að þá séu laus sæti sem henta vel til að sjá túlk.
Ekki þarf að greiða fyrir aðstoðarfólk inn á sýninguna. Gert er ráð fyrir aðstoðarfólki þegar keyptir eru miðar í hjólastólastæði og fyrir sýningu setur starfsfólk miðasölu stól fyrir þau inn í sal
Öll salerni í húsinu er kynlaus.
Veitingarsala er á staðnum.
