LOVE LOVE- nánara aðgengi
Aðgengislýsing
Aðgengi í Silfurbergi er almennt gott. Útidyr eru sjálfvirkar rennihurðir og ekki eru þröskuldar við þær. Þrjár lyftur fara beint úr bílastæðakjallara og á allar hæðir hússins. Sérmerkt hjólastólastæði eru í miðjum sal, panta þarf sæti í gegnum miðasölu Hörpu. Greitt er almennt miðaverð fyrir stæðin.
Sæti í Silfurbergi eru án arma.
Við suma innganga eru dyramottur með snöggum hárum.
Aðgengileg salerni eru á öllum hæðum Hörpu.
19 sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru í bílakjallara Hörpu og 2 stæði sjávarmegin við húsið sjálft. Til að geta lagt gjaldfrjálst í stæðin í bílakjallara þarf að senda póst á bilahus@greenparking.is með a.m.k. 3 tíma fyrirvara með nafni, kennitölu handhafa P-merkis, bílnúmeri, tímasetningu og ljósmynd af P-merki.
Tónmöskvi er í Silfurbergi. Hægt er að fá afnot af búnaðnum með því að láta vita í miðasölu þegar miðar eru keyptir. Það eru sendar í loftinu sem gefa frá sér innrautt merki. Merkið sendist í móttakara, heyrnartól eða hljóðslaufu sem virkar með heyrnartækjum.
Kynlaus salerni eru við efri bílakjallara og á gangi á 2. hæð. Aðgengileg salerni eru einnig kynlaus.
Á 1. hæð er veitingarstaðurinn Hnoss Bistro og á 4. hæð er veitingarstaðurinn La Primavera.
Afþreyingarsvæði fyrir börn er á 1. hæð Hörpu og skiptiborð á nokkrum salernum.
