Stefna Listahátíðar í Reykjavík gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustað
Stefna þessi er sett í samræmi við 38. gr. laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og reglugerð nr. 1009/2015 um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.
Markmið
Markmið stefnunnar er að koma í veg fyrir einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustaðnum og tryggja að til staðar séu úrræði telji starfsfólk sig hafa orðið fyrir slíkum brotum.
Skilgreiningar á hugtökum
· Einelti: Síendurtekin hegðun sem almennt er til þess fallin að valda vanlíðan hjá þeim sem fyrir henni verður, svo sem að gera lítið úr, móðga, særa eða ógna viðkomandi eða að valda honum ótta. Skoðanaágreiningur eða ágreiningur vegna ólíkra hagsmuna fellur ekki hér undir.
· Kynbundin áreitni: Hegðun sem tengist kyni þess sem fyrir henni verður, er í óþökk viðkomandi og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkomandi og skapa aðstæður sem eru ógnandi, fjandsamlegar, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi fyrir viðkomandi.
· Kynferðisleg áreitni: Hvers kyns kynferðisleg hegðun sem er í óþökk þess sem fyrir henni verður og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkomandi, einkum þegar hegðunin leiðir til ógnandi, fjandsamlegra, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi aðstæðna. Hegðunin getur verið orðbundin, táknræn og/eða líkamleg.
· Ofbeldi: Hvers kyns hegðun sem leiðir til, eða gæti leitt til, líkamlegs eða sálræns skaða eða þjáningar.
Leiðarljós
Einelti, kynbundin eða kynferðisleg áreitni eða ofbeldi eru óheimil samkvæmt lögum og ekki liðin á vinnustaðnum.
· Starfsfólki er óheimilt að leggja annað starfsfólk í einelti, áreita það með kynbundnum eða kynferðislegum hætti eða beita það ofbeldi.
· Það er á ábyrgð alls starfsfólks að koma í veg fyrir einelti og aðra ótilhlýðilega hegðun, bæði með eigin athöfnum og tilkynningu til tilgreindra aðila í samræmi við viðbragðsáætlun.
· Einstaklingur getur verið ómeðvitaður um að hegðun hans sé óviðeigandi. Því er mikilvægt að starfsfólk setji mörk og geri grein fyrir því ef þeim líkar ekki framkoma viðkomandi með eða án aðstoðar stjórnenda og eftir atvikum tilkynna um málið.
· Þetta á við um samskipti milli samstarfsfólks og samskipti starfsfólks og annarra sem þau eiga samskipti við vegna starfsins.
· Þetta á við um samskipti sem eiga sér stað á vinnustaðnum, þ.e. umhverfi, innanhúss eða utan, þar sem starfsfólk hefst við eða þarf að fara um vegna starfa sinna. Einnig á þetta við um samskipti í gegnum tölvu, síma eða önnur fjarskiptatæki, á skemmtunum á vegum vinnustaðarins og í vinnuferðum. Einnig getur Listahátíð fjallað um athafnir samkvæmt þessum reglum sem eiga sér stað utan vinnustaðarins og utan þess sem að framan er talið, ef þær eru að mati stjórnenda til þess fallnar að hafa áhrif á samskipti aðila á vinnustaðnum og teljast þær þá falla undir þessar reglur.
· Tekið er á öllum málum samkvæmt viðbragðsáætluninni.
· Tekið verður á fölskum ásökunum um einelti, áreitni eða ofbeldi.
· Ef starfsfólk telur sig hafa orðið fyrir einelti, áreitni eða ofbeldi eða telur sig hafa orðið vitni að slíkri hegðun skal láta vita svo hægt verði að bregðast við.
· Kvörtunum eða ábendingum ber að beina til framkvæmdastjóra. Ef kvörtun eða ábending varðar framkvæmdastjóra er hægt að leita til listræns stjórnanda og beinist kvörtun eða ábending að listrænum stjórnanda er hægt að leita til formanns stjórnar.
· Ábyrgðaraðili viðbragðsáætlunar Listahátíðar í Reykjavík er framkvæmdastjóri.
Stefna þessi var samþykkt á stjórnarfundi Listahátíðar í Reykjavík 24. september 2025 og skal endurskoðuð árlega.
Viðbragðsáætlun gegn einelti, kynferðislegri og kynbundinni áreitni og ofbeldi
Áætlunin byggir á stefnu Listahátíðar í Reykjavík gegn einelti, kynferðislegri eða kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustað.
Upphaf ferlis
Upplýsingar eða tilkynning berast til ábyrgðaraðila í samræmi við stefnu.
Ábyrgðaraðili fær upplýsingar um eftirfarandi frá þeim sem tilkynnir:
- Hver er gerandi
- Lýsing á hegðun
- Hvenær átti hegðunin sér stað, hvar og hverjir voru viðstaddir ef við á
Ábyrgðaraðili tryggir að allar tilkynningar séu metnar af utanaðkomandi fagaðila og skjölun gagna sé framfylgt.
Óformlegt ferli
Ef meintur þolandi óskar eftir trúnaði og vill ekki hefja ferli þarf utanaðkomandi fagaðili að leggja mat á hvort það sé heimilt. Telji fagaðili ástæðu til þess að farið sé áfram með málið, skal meintum þolanda veittur sérfræðilegur stuðningur og málið sett í rannsókn.
Ef fagaðili telur heimilt að málið fari í óformlegt ferli skal meintum þolanda engu að síður boðinn stuðningur en ekki er skjalað hver meintur gerandi er og aðrir en ábyrgðaraðili fá ekki upplýsingar um það.
Formlegt ferli
Rannsókn
Ábyrgðaraðili undirbýr rannsókn á því hvort um sé að ræða rökstuddan grun, setur upp viðtalsáætlun og aflar gagna.
Viðtöl
Ábyrgðaraðili fær til samvinnu fagaðila til að framkvæma mat og viðtöl eða framkvæmir viðtölin sjálfur, skráir og fær aðstoð við mat.
Viðtöl við meintan þolanda og vitni: Rætt við meintan þolanda og vitni. Viðtölin og efni þeirra eru trúnaðarmál og viðmælendum óheimilt að segja frá þeim og ræða málið við meintan þolanda eða meintan geranda.
Viðtöl við meintan geranda: Meintum geranda kynnt málið. Lögð fram samantekt úr viðtölum og gögnum án mats á niðurstöðu. Viðkomandi beðinn um eigin lýsingu á hegðun, stað og stund og hvort um vitni sé að ræða. Óskað er eftir öðrum upplýsingum sem viðkomandi telur skipta máli. Metið er hvort þurfi að tala við fleiri aðila skv. ábendingu meints geranda og hvort viðtal við viðkomandi kalli á annað viðtal við meintan þolanda, önnur vitni og að lokum nýtt viðtal við meintan geranda. Aðilum máls er boðið að fá stuðning fagaðila ef ferlið veldur þeim vanlíðan og álagi.
Mat
Að lokinni rannsókn fer fram mat og niðurstaða fengin. Niðurstaða kynnt fyrir meintum þolanda og meintum geranda. Niðurstaða geymir aðgerðaáætlun með tímaáætlun aðgerða. Meintum þolanda og meintum geranda boðin sátt um aðgerðaáætlun ef við á eða kynntar aðgerðir.
Ekki einelti, kynferðisleg eða kynbundin áreitni eða ofbeldi:
- Aðgerðaáætlun geymir aðgerðir til að greiða úr samskiptum
- Gefin eru skýr skilaboð um hvernig bæta eigi samskiptin
- Eftirlit og eftirfylgni skv. aðgerðaáætluninni
- Meintur gerandi og meintur þolandi upplýstir um að málið teljist lokið en sé í eftirfylgni af ábyrgðaraðila.
Einelti, kynferðisleg eða kynbundin áreitni eða ofbeldi til staðar:
- Áætlun geymir ákvörðun um afleiðingar fyrir geranda: Áminning eða uppsögn ef við á Sáttaferli ef við á, stutt með skýrum skilaboðum um bætt samskipti, eftirlit og eftirfylgni
o Gefin eru skýr skilaboð um bætt samskipti
o Eftirlit og eftirfylgni skv. aðgerðaáætluninni
o Gerandi og þolandi upplýstir um að málinu sé lokið en sé í eftirfylgni ábyrgðaraðila
Eftirfylgni
Stuðningur við málsaðila, fylgst með andlegri líðan og gengi. Árangur aðgerðaráætlunar metinn og því velt upp hvort að þörf sé á að fara í frekari aðgerðir, t.d. breytingar á starfi, vinnuskipulagi eða öðru.
Viðbragðsáætlun þessi var samþykkt á stjórnarfundi Listahátíðar í Reykjavík 24. september 2025 og skal endurskoðuð árlega samhliða stefnu gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustað.