30. maí -14. júní 2026

Arabískar nætur - nánara aðgengi

Fögnuður arabískrar menningar með dansi, söng, sögum, tungumálakennslu og mat.

Aðgengislýsing

Wheelchair

Rampur liggur að útidyrahurð. Hurð opnast ekki sjálfkrafa. Um 5 cm. þröskuldur er inn í hús með hallandi lista úti en ekki inni, þegar farið er úr húsi. Innanhúss eru listar eru við alla þröskulda sem opnir eru almenning. Hluti viðburða í Klúbbnum fer fram á pallinum við Iðnó. Rampar eru á báðum hliðum við pallinn en einnig er aðgengi út á pall í gegnum salinn í Iðnó. Lágur þröskuldur er við útidyrahurð.

Lyfta er á milli 1. og 2. hæðar. Lyftan er til vinstri við tröppur upp á aðra hæð, við inngang inn í eldhús. Gestir geta notað lyftuna sjálfir.

Aðgengilegt salerni er á 1. hæð, til vinstri við inngang. Stuðningslár og vaskur er inni á salerni en rýmið sjálft er þó í minna lagi og því er aðgengi fyrir stærri hjólastóla ekki nógu gott.

Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er í Tjarnargötu við Tjarnarskóla. Einnig er eitt sérmerktstæði, sem einnig er hleðslustæði, á Kirkjutorgi við Dómkirkjuna og annað við Smiðju, skrifstofubyggingu Alþingis, á horni Tjarnargötu og Vonarstrætis.

Headphones

Sérstakt næðisrými er á 2. hæð. Rýmið er í Forsetaherberginu sem er til hægri þegar komið er inn í Sunnusal.

Frítt er á alla viðburði í Klúbbnum

Öll salerni eru kynlaus.

Skiptiborð er inni á aðgengilegu salerni

Veitingasala er á staðnum.