30. maí -14. júní 2026

Aðgengi & skynlýsingar í Klúbbnum

Aðgengislýsing á Klúbbnum

Frítt er á alla viðburði í Klúbbnum

Öll salerni eru kynlaus.

Skiptiborð er inni á aðgengilegu salerni.

Veitingasala er á staðnum.

Pop up eldhús mun bjóða upp á Buddha/Poké skálar 30 maí, 5. júní og 14. júní milli kl. 17:00-22:00.

Wheelchair with Exclamation Mark

Rampur liggur að útidyrahurð. Hurð opnast ekki sjálfkrafa. Um 5 cm. þröskuldur er inn í hús með hallandi lista úti en ekki inni, þegar farið er úr húsi. Innanhúss eru listar eru við alla þröskulda sem opnir eru almenning. Lyfta er á milli 1. og 2. hæðar. Lyftan er til vinstri við tröppur upp á aðra hæð, við inngang inn í eldhús. Gestir geta notað lyftuna sjálfir.

Aðgengilegt salerni er á 1. hæð, til vinstri við inngang. Stuðningslár og vaskur er inni á salerni en rýmið sjálft er þó í minna lagi og því er aðgengi fyrir stærri hjólastóla ekki nógu gott.

Eitt sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða er í Tjarnargötu við Tjarnarskóla. Einnig er eitt sérmerktstæði, sem einnig er hleðslustæði, á Kirkjutorgi við Dómkirkjuna og annað við Smiðju, skrifstofubyggingu Alþingis, á horni Tjarnargötu og Vonarstrætis.

Sign Language

Eftirfarandi viðburðir verða textaðir á heimasíðu sem gestir geta haft opna í farsímum á meðan viðburðinum stendur. Á staðnum verða hengd upp plaggöt með QR kóða sem gestir geta skannað til að sjá lifandi textun.

Kvöldkaffi með Stefáni Ragnari

Hagyrðingakvöld ásamt Tríó Zimzen

Kvöldkaffi með Hildi Guðnadóttur

Headphones

Sérstakt næðisrými er á 2. hæð.

Rýmið er í Forsetaherberginu sem er til hægri þegar komið er inn í Sunnusal.

Rýmið verður myrkvað með kósý lýsingu. Þar verður meðal annars fiktidót, heyrnahlífar, púðar með mismunandi áferðum og þungt teppi.

Skynlýsingar á viðburðum í Klúbbnum