Við getum talað saman

Listafólk úr Platform GÁTT (AX, FI, GL, IS)


Opnun 11. júní kl. 14:00.

Þurfum við að velta því fyrir okkur hvað Norðurlöndin þýða? Hvað Skandinavía þýðir? Þegar við sameinumst undir formerkjum slíkrar hugmyndar sjáum við að við erum bæði líkari og ólíkari en við töldum. Við deilum mörgu en ekki öðru. Við sjáum líka að hugmyndin er búin til – að við búum hana til. Hér sýnir ungt listafólk frá þessum norðurslóðum verk búin til í okkar síbreytilega veruleika.

Platform GÁTT er samstarfsverkefni fimm stórra þverfaglegra listahátíða og stofnana á Norðurlöndum sem hefur verið starfrækt frá árinu 2019. Lokaviðburðurinn fer fram á Listahátíð í sumar. Í þessu þriggja ára verkefni sem fór fram í fimm löndum beindist kastljósið að listafólki undir 35 ára aldri. Listafólkið kynntist þeim stofnunum sem koma að verkefninu með það að markmiði að manngera þessar stóru listastofnanir og opna að þeim dyr. Einnig hefur listafólkið myndað tengsl sín á milli og á milli landa. 

Verkefnið er stutt af Norrænu ráðherranefndinni og er samstarf Listahátíðar í Reykjavík, sem leiðir verkefnið, Listahátíðarinnar í Bergen, Nuuk Nordisk Kulturfestival, Norðurlandahússins í Færeyjum og Listahátíðarinnar í Helsinki.

Listafólk: Martin Brandt Hansen, Constance Tenvik, Nayab Ikram, Ville Andersson, Laura Marleena Halonen (Ilmastokirkko), Ronja Louhivuori (Ilmastokirkko), Una Björg Magnúsdóttir, Loji Höskuldsson, Melanie Ubaldo.
Sýningarstjóri: Starkaður Sigurðarson
Samstarfsaðilar: Gerðarsafn, Bergen Festspillene, Helsinki Festival, Norðurlandahúsið í Færeyjum, Nuuk Nordisk Kulturfestival & Nordisk Kulturfond

Mynd: Constance Tenvik, Dressing Up Before Going Out (2021)

Styrktar- og samstarfsaðilar:

11. JÚN - 4. SEP

Dagsetning

11. júní - 4. september 2022
Opnunartími:
kl. 10:00 - 17:00

Staðsetning

Verð

Kr. 1.000 (Frítt á opnun)

Listafólk

Listafólk úr Platform GÁTT (AX) (FI) (GL) (IS)

Aðgengi

Að Gerðarsafni er gott aðgengi fyrir hreyfihamlaða. Best er að nota aðalinngang, að ofanverðu. Lyfta er á staðnum.

BUS: 1, 2, 4, 28, 35, 36

Merktu daginn