17
JÚN
dAzzleMAZE
Dalija Acin Thelander (SE/RS)
Heimferð er einstæð ör-leikhúsupplifun í hjólhýsi fyrir lítinn áhorfendahóp í senn. Í þessari heillandi sýningu fyrir alla aldurshópa er notast við hreyfimyndir, tónlist, leiklist, brúðulist, hljóð og mynd til að skoða muninn á hreyfanlegu heimili sem marga dreymir um og þeirri upplifun að búa á slíku heimili þvert gegn eigin vilja, í krísuástandi.
Áhorfendum er fylgt í gegnum opna sögu sem þeir móta sjálfir um leið og þeir fá að gægjast inn í litla heima, einkalíf annarra, og kanna mörgþúsund örstutt augnablik sem flytja okkur aftur heim.
Handbendi er margverðlaunaður brúðuleikhúshópur með aðsetur á Hvammstanga og handhafi Eyrarrósarinnar. Heimferð verður sýnd á Hvammstanga, Akureyri, Rifi, Akranesi, Borgarnesi, í Iðnó, Gerðubergi og Elliðaárdal. Fyrsta sýningin í Elliðaáral verður aðgengileg fyrir notendur hjólastóls.
Leikstjóri: Greta Clough.
Flytjendur: Sigurður Arent Jónsson, Sylwia Zajkowska, Sigríður Ásta Olgeirsdóttir.
Danshöfundur: Snædís Lilja Ingadóttir.
Leikmynd & lýsing: Egill Ingibergsson.
Textíll & uppstilling: Jamie Wheeler.
Leikbrúður: Cat Smits, Greta Clough.
Tónlist: DVA, Paul Mosely.
Sýningar:
1. júní: Félagsheimilið Hvammstanga, kl. 13:00 - 20:00
2. júní: Félagsheimilið Hvammstanga, kl. 13:00 - 20:00
4. júní: Akureyri, kl. 10:00 - 17:00
5. júní: Akureyri, kl. 10:00 - 17:00
9. júní: Við grunnskólann í Búðardal, kl. 15:30 - 20:00
10. júní: Stykkishólmur, kl. 13:00 - 20:00
11. júní: Grundarfjörður, kl. 13:00 - 20:00
12. júní: Frystiklefinn, Rifi, kl. 13:00 - 20:00
13. júní: Akranes, kl. 13:00 - 20:00
14. júní: Borgarnes, kl. 13:00 - 20:00
17. júní: Iðnó, Reykjavík, kl. 10:00 - 17:00
18. júní: Gerðuberg, Reykjavík, kl. 10:00 - 17:00
19. júní: Elliðaárdalur, Reykjavík, kl. 10:00 - 17:00
Styrktaraðilar:
1. - 19. júní
Kr. 2.000
Handbendi (IS)
Fyrsta sýningin í Elliðaárdal verður aðgengileg fyrir notendur hjólastóls.
STRÆTÓ: 1, 3, 6, 11, 12, 13, 55 (Iðnó)
3, 4, 12, 17 (Gerðuberg)
3, 11, 12, 16, 17 (Elliðaárdalur)